Föstudagur 26. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Flóðbylgja brottvísana: „Meðal annars er í hópnum kona gengin átta mánuði á leið“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Brottvísanir hælisleitenda eru hafnar frá Íslandi eftir að hafa legið að mestu niðri í tvö ár. Um nokkuð stóran hóp er að ræða, á þriðja tug flóttamanna, og stendur til að senda fólkið til Grikklands. Samkvæmt Magnúsi M. Norðdahl lögmanni gæti fjöldinnstórvaxið.

Covid-ferðatakmarkanir hafa sett strik í reikninginn varðandi brottvísanir en þær eru nú úr sögunni.

„Umbjóðendur mínir hafa fengið símtöl undanfarna daga með tilkynningu um fyrirhugaða framkvæmd brottvísunar,“ segir í samtali við Fréttablaðið í dag.

Magnús segir að í hópnum séu einstaklingar sem hafa dvalið hér á landi í lengri tíma, fest hér rætur, fengið vilyrði um vinnu, eignast barn og myndað tengsl við íslenskt samfélag.

„Meðal annars er í hópnum kona gengin átta mánuði á leið,“ segir Magnús sem bætir við að þetta sé ómannúðleg meðferð á fólki sem hefur fest hér rætur.

„Heimsfaraldur kórónaveiru takmarkaði mjög tækifæri stjórnvalda til að vísa fólki á brott, sem jók tímalengd dvalar hér á landi. Að taka þann hóp núna og reka úr landi er ámælisvert og ekki í anda samfélags mannúðar og kærleika.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -