Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Pólitík

Sakar Trygg­inga­stofnun um að veita rangar upp­lýs­ingar og sýna for­dóma

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Pólitík

Glúmur segir Ólaf Ragnar „mesta vind­hana sem Ísland hefir fætt og klætt“

Formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur ætlar að treysta því að loforð haldi: „Við þekkjum þessa sögu“

Formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur ætlar að treysta því að loforð haldi: „Við þekkjum þessa sögu“
Hörður Guð­brands­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Grinda­víkur. Mynd: grindavik.is

Um það bil 200 starfs­menn útgerð­ar­innar Vísis eru félags­menn í Verka­lýðs­fé­lagi Grinda­víkur, sam­kvæmt for­manni félags­ins. Í ljósi frétta af yfir­vof­andi kaupum Síld­ar­vinnsl­unnar á Vísi seg­ist hann vilja vera bjart­sýnn og treystir því að Vísir verði áfram í Grinda­vík, enda sé bær­inn bæði vel stað­settur og vinnslan afar vel búin tækni­lega. Hann seg­ist þó muna Gugguna á Ísafirði og lof­orðin sem þar voru sett fram á sínum tíma.

Hörður Guð­brands­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Grinda­víkur segir að flestir þeirra félags­manna sem starfi hjá Vísi vinni í fisk­vinnsl­unni. Aðspurður hvort vænt­an­leg kaup Síld­ar­vinnsl­unnar á Vísi veki áhyggjur hjá verka­lýðs­fé­lag­inu fyrir hönd félags­manna segir hann félagið ætla að treysta því að yfir­lýs­ingar um að útgerðin og vinnslan verði áfram í Grinda­vík stand­ist.

„Fyrir utan að þeir átti sig á því hvað það er mik­ill mannauður í fyr­ir­tæk­inu í Grinda­vík. Það er nátt­úru­lega búið að vera að tækni­væða það mjög mikið. Það, plús stað­setn­ingin, tel ég nú að sé til þess að meiri líkur en minni séu á því að þetta muni ekki vera til hins verra. Frekar að það verði upp­bygg­ing áfram,“ segir Hörður.

Hörður seg­ist því treysta því að fyr­ir­komu­lagið verði áfram óbreytt eða breyt­ist til hins betra. „Pétur hafði sam­band við okkur og bauð okkur á fund til þess að fara betur yfir þetta. Ég er reyndar í sum­ar­fríi en við ætlum að reyna að hitt­ast þegar við náum báðir saman.“ Pétur Haf­steinn Pálsson er fram­kvæmda­stjóri og einn eig­enda Vísis, sem ráð­gert er að muni halda áfram sem fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins undir nýjum eig­endum.

Hörður segir sam­tal því eiga sér stað um hina nýju stöðu á öllum póstum. „Þess vegna held ég að við verðum bara að treysta því að þetta gangi allt eftir. En auð­vitað hefur maður séð alls konar í gegnum árin. Við þekkjum þessa sögu: Guggan er gul og verður gerð út frá Ísafirði. Það eru nokkrar svo­leiðis.“

Enn hafa ekki margir félags­menn Verka­lýðs­fé­lags Grinda­víkur, sem starfa hjá Vísi, haft sam­band við félagið í tengslum við málið. „Nei, ekki mikið. Ég hef heyrt í einum eða tveimur en mér heyr­ist fólk ekk­ert vera sér­stak­lega áhyggju­fullt, þannig. Það treystir því bara að þetta standi.“

Hörður nefnir kost­ina við stað­setn­ingu Vísis í Grinda­vík. „Við erum nátt­úru­lega rosa­lega vel stað­sett; stutt í flug­völl­inn og stutt í útflutn­ing frá Þor­láks­höfn. Plús það að vænt­an­lega verður ein­hver upp­bygg­ing í fisk­eldi á svæð­inu líka. Þannig að þetta styður við stað­setn­ing­una. Þess vegna erum við kannski ekk­ert voða­lega óró­leg. Svo er búið að tækni­væða mjög mikið og mikil þekk­ing í starfs­fólk­inu í Grinda­vík.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Er Sabrina Pasterski næsti Einstein?

Eftir að hafa smíðað flugvél á unglingsárum rannsakar Sabrina Pasterski nú svarthol, þyngdarafl og eðli rúmtímans.
Innlent

Maður játar að hafa brotið rúður í nærri þrjá­tíu bílum á Sel­tjarn­ar­nesi

Innlent

Erfða­rann­sóknir á Íslend­ingum lyk­il­at­riði í þróun nýs megr­un­ar­lyfs

Innlent

Eyjan sem átti að hverfa árið 2020 stendur enn upp úr sjó

Pólitík

„Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

Innlent

Innlent

Umboðs­maður Alþingis krefur Útlend­inga­stofnun svara

Fjölmargar kvartanir vegna tafa á afgreiðslu umsókna hafa borist umboðsmanni, sem vill skýringar á biðtíma.
Innlent

Drífa segir frjálst val í vændi oft vera blekk­ingu

Innlent

Lög­reglan gerði mis­tök en íslenska ríkið sleppur við bætur

Innlent

Nú er hægt að spjalla við lög­regl­una á net­inu

Innlent

Egill segir íslenska fjöl­miðla fasta í einni mestu fréttagúrku síð­ari ára

Innlent

Fíkni­efna­bóndi í Reykja­vík dæmdur í fang­elsi