Fimmtudagur 25. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

Formlegri leit að Rimu hætt

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Lögreglan á Suðurlandi hefur ákveðið að hætta formlegri leit að Rima Grunskyté Feliksasdóttur sem leitað hefur verið að frá því 23. desember. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef lögreglunnar. 

Rima Grunskyté Feliksasdóttir.

Þar segir að ákvörðun um að hætta formlegri leit hafi verið tekin eftir fund með Svæðisstjórn björgunarsveita á svæði 16 sem haldinn var í Vík í gærkvöldi.

Rima er talin hafa fallið í sjó af Dyrhólaey þann 20. desember 2019. Leit að henni hefur ekki borið árangur en henni hefur verið sinnt bæði formlega af stórum hópum björgunarsveitarmanna og einnig af minni hópum sem fylgst hafa með reki á fjörur á líklegum stöðum.

Óformlegri leit verður áfram sinnt  eftir því sem aðstæður eru metnar gefa tilefni til hverju sinni er fram kemur í tilkynningu lögreglu.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -