Fjöllistagrínarinn og handritshöfundurinn Sigurjón Kjartansson – oftlega kenndur við fóstbræður – gekk að eiga Halldóru Guðbjörgu Jónsdóttur nuddara og snyrtifræðing.
Þau ákváðu að giftu sig heima í stofu á Selfossi þar sem parið fallega hefur hreiðrað um sig.
Sigurjón segir frá þessum gleðilega viðburði á Facebook-síðu sinni; hann er þakklátur fyrir að hafa fundið svona yndislegan lífsförunaut.
Parið byrjaði að stinga saman nefjum snemma á síðasta ári, en nú er málið frágengið og hjónaband skemmtileg og afar ánægjuleg staðreynd.
Sigurjón er eðlilega í skýjunum og lét þessi orð flakka:
„Samkvæmt Þjóðskrá er þessi dásamlega kona nú formlega orðin eiginkona mín, en við létum pússa okkur saman fyrir um hálfum mánuði síðan með oggulítilli athöfn á heimili okkar. Ég er hamingjusamur maður og gríðarlega þakklátur fyrir að hafa fundið þessa einstöku konu sem lífsförunaut! Ég elska þig blúndan mín fagra, Halldóra Guðbjörg Jónsdóttir.“