Föstudagur 29. mars, 2024
-3.2 C
Reykjavik

Framlög til Samferða margfaldast milli mánaða: Þekkir þú einhvern sem þarf á aðstoð að halda?

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Góðgerðasamtökin Samferða styrkja í hverjum mánuði fjölskyldur sem þurfa á hjálp að halda. Oft er um að ræða fjölskyldur þar sem annað foreldri, eða einstætt foreldri, glímir við krabbamein eða aðra sjúkdóma.

Sjá einnig: Góðverk fyrir ekkju með ung börn: „Takk fyrir gleðina sem ríkir hjá mínum börnum núna“

Hægt er að styrkja Samferða með beinum greiðslum inn á bankareikning samtakanna, eða með því að hringja í 900-númer þess. Þau gleðitíðindi urðu í apríl að framlög í gegnum númerin margfölduðust milli mánaða.

„Mesta sem við höfum fengið eru 45.000 krónur á einum mánuði. Núna hefur hinsvegar orðið heldur betur breyting. Vorum að fá yfirlit fyrir apríl mánuð. Það voru tæplega 500 viðskiptavinir þeirra sem hringdu og það skilar okkur 1.275.000 krónum,“ segir í færslu á vef Samferða.

Yfirlit yfir aprílmánuð

„Ég er bara klökkur, þetta er magnað,“ segir Örvar Þór Guðmundsson, sem stofnaði góðgerðarsamtökin Samferða árið 2016 og situr í stjórn þeirra.

Örvar Þór Guðmundsson
Mynd / Facebook

Nú þegar hefur Samferða styrkt sex fjölskyldur í maí og það sem af er þessu hafa samtökin styrkt samtals 56 fjölskyldur. Næsti fundur Samferða verður mánudaginn 18. maí og enn er hægt að senda ábendingar um einstaklinga og fjölskyldur sem á hjálp þurfa að halda með tölvupósti á [email protected].

- Auglýsing -

Þeir sem vilja styrkja starf Samferða geta lagt inn á
reikningur 0327-26-114
kennitala 651116-2870

Einnig er hægt að hringja í 900 númer Samferða:
907-1081 – gefur 1000 krónur
907-1083 – gefur 3000 krónur
907-1085 – gefur 5000 krónur
907-1090 – gefur 10000 krónur

Allir einstaklingar sem starfa í stjórn Samferða gefa vinnu sína, auk þess er enginn kostnaður. „Sökum þess gefum við alltaf allt sem safnast,“ segir Örvar Þór.Ábendingar og/eða fyrirspurnir má senda í gegnum Facebook-síðu Samferða.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -