Þriðjudagur 23. apríl, 2024
4.1 C
Reykjavik

Friðrik Þór hættir sem rektor Kvikmyndaskólans – Ætlar að snúa sér aftur að kvikmyndagerð

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Þann 1. september næstkomandi verður breyting í brúnni hjá Kvikmyndaskóla Íslands en þá stígur Friðrik Þór Friðriksson til hliðar sem rektor skólans og Börkur Gunnarsson tekur tímabundið við.

Friðrik Þór Friðriksson
Ljósmynd: Aðsend

Í tilkynningu frá Kvikmyndaskólanum segir að Friðrik Þór Friðriksson, sem verið hefur rektor Kvikmyndaskóla Íslands síðastliðin fimm ár, muni láta af störfum 1. september næstkomandi. Segir ennfremur í tilkynningunni að Friðrik Þór hafi á þessu tímabili leitt stórstígar og margvíslegar framfarir. Skólinn flutti í nýtt framtíðarhúsnæði að Suðurlandsbraut 18 með frábærri aðstöðu fyrir allt skólahald. Árangur útskriftarmynda síðastliðin ár hefur verið mjög góður með fjölda viðurkenninga víðsvegar um heiminn og útskrifaðir nemendur hafa sett mark sitt á stórfellda uppbyggingu kvikmynda- og sjónvarpsiðnaðar hér á landi. Ein stærsta viðurkenningin var þegar hinn heimsfrægi Julliard listaskóli í New York óskaði eftir samstarfi við Kvikmyndaskólann um gerð kvikmyndatónlistar við valdar útskriftarmyndir. Frá árinu 2020 hefur verið unnið að yfirfærslu skólans á háskólastig og nú í haust hefur skólinn hafið störf sem fullburða rannsóknarháskóli. Friðrik Þór er ennþá virkur í kvikmyndaframleiðslu og hyggst snúa sér að fullum krafti að kvikmyndagerð.

Frá skólainnsetningu
Ljósmynd: Aðsend

Börkur Gunnarsson fagstjóri í Deild 3 hefur verið settur rektor frá 1. september til 1. janúar. Auglýsing um nýjan rektor verður birt á evrópska efnahagssvæðinu um næstu mánaðamót og stefnt er að því að ráðningu verði lokið 10. nóvember og að nýr rektor hefji störf á vormisseri.

Börkur Gunnarsson Ljósmynd: Aðsend

Börkur Gunnarsson er menntaður í kvikmyndagerð frá hinum virta FAMU í Tékklandi, í tékknesku deildinni. Hann hefur að auki próf í heimspeki frá Háskóla Íslands og er að ljúka MBA námi frá Háskólanum í Reykjavík. Börkur hefur verið mjög virkur bæði sem kvikmyndaleikstjóri og rithöfundur síðastliðna áratugi. Hann hefur kennt reglulega við Kvikmyndaskólann í gegnum tíðina en frá árinu 2020 hefur hann verið fagstjóri í handritagerð þar sem hann hefur náð mjög góðum árangri.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -