Fuglavernd stendur nú fyrir kosningu á fugli ársins 2022. Hægt er að kjósa til 12. september.
Með kosningu á fugli ársins vill Fuglavernd meðal annars vekja athygli á málefnum fugla, sem og afla nýrra Fuglaverndarfélaga og styrktaraðila en ekki síst að skemmta og fræða eins og það er orðað á heimasíðu Fuglaverndar. Hingað til lands sækja margar fuglategunda, vegna góðra og oft framúrskarandi aðstæðna til að ala unga sína en þó eru sumir þeirra í hættu vegna umsvifa mannskepnunnar, loftslagsbreytinga eða eyðingu búsvæða.
Eftirtaldir fuglar komust áfram í forvalinu: Auðnutittlingur, himbrimi, hrafn, hrossagaukur, jaðrakan, kría og maríuerla. Hægt er að kynna sér fróðleiksmola um tegundirnar á www.fuglarsins.is og kjósa þann fugl sem verðskuldar titilinn Fugl ársins 2022 en í fyrra var það Heiðlóan sem bar sigur úr býtum. Tilkynnt verður um úrslitin á Degi ísenskrar náttúru, 16. september.