Þriðjudagur 16. apríl, 2024
2.1 C
Reykjavik

Fundu fíkniefnaræktun í Kópavogi – Handtóku konu sem öskraði stanslaust

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Lögregla handtók í gærkvöldi mann í miðbæ Reykjavíkur. Fyrr um kvöldið hafði lögregla ítrekuð afskipti af manninum þar sem hann var sagður meðvitundarlaus vegna ölvunar en skömmu síðar var hann kominn inn á veitingastað. Þegar starfsfólk vísaði honum út neitaði hann að fara eftir fyrirmælum þess. Var hann því handtekinn og látinn gista í fangaklefa. Í hverfi 108 var bifreið ekið út a fog upp á umferðareyju. Ökumaðurinn fann til í hálsi og höfði eftir umferðaróhappið og var hann fluttur með sjúkrabíl til aðhlynningar á bráðadeild.

Þjófar höfðu á brott með sér verðmæti úr sumarbústað staðsettum í Hafnarfirði. Tóku þeir meðal  annars ryksugu róbot, sjónvarpi og öðrum verðmætum. Málið er nú til rannsóknar hjá lögreglunni. Í Kópavogi fann lögregla fíkniefnaræktun í iðnaðarbili. Plöntur og tæki voru gerð upptæk og skýrsla tekin af húsráðanda. Síðar um kvöldið,  um klukkan hálf tólf, handtók lögregla konu í Grafarholti. Konan var undir áhrifum fíkniefna, öskraði stanslaust og var óviðræðuhæf. Sökum ástands var hún vistuð í fangaklefa lögreglu. Þá voru nokkrir stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum vímuefna.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -