Föstudagur 19. apríl, 2024
4.1 C
Reykjavik

Fyrsta alvarlega lestarslys Íslandssögunnar – Guðlaug var aðeins fimm ára

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Þann 22. ágúst, 1916, varð fyrsta lestarslys Íslandssögunnar, sem olli dauða. Þar lét fimm ára stúlka lífið.

Guðlaug Eiríksdóttir var aðeins fimm ára þegar hún varð fyrir því hryllilega óhappi að lenda fyrir lest. Slysið átti sér stað á Skúlagötu er lest flutti efni úr Öskjuhlíðinni í hafnarmannvirkin í Reykjavík.

Morgunblaðið lýsti hinum skelfilega atburði með nokkuð grafískum hætti líkt og tíðkaðist á þeim tíma:

Hryggilegt slys varð við höfnina í gær síðdegis. Járnbrautarlestin rendi á litla telpu fyrir framan Sláturfélagshúsin og varð hún undir gufuvagninum. Sneiddi hann af henni annan fótinn fyrir ofan ökkla og skemdi hinn fótinn mikið. Var barnið borið meðvitundarlaust upp á spítala og Sæmundur Bjarnhéðinsson læknir fenginn til þess að reyna að bjarga lífi þess. Fyrir framan Sláturhúsin eru skúrar og hús; er þar svo þröngt að eigi sér til lestarinnar fyr en hún kemur, enda verður þar hlykkur á brautinni. Fullorðnum mönnum stendur þó engin hætta af þessu, því að bæði er að langar leiðir heyrist skröltið i lestinni og svo gæta ökumenn þess jafnan að gefa viðvörunarmerki með gufupípunni. Og það gerðu þeir að þessu sinni. En óvita börn hafa eigi rænu á því að gæta sín, og því fór svo að þetta sorglega slys bar að höndum. Ætti þetta enn að vera mönnum alverleg áminning um það að líta betur eftir börnum sínum og láta þau eigi vera ein úti. — En þetta ætti einnig að verða til þess að vekja athygli manna á því, hvort eigi muni hægt að koma í veg fyrir fleiri slys hér við höfnina. Slysin eru nú farin að verða þar alltíð og með ýmsum hætti. Getur verið að mikillar varkárni sé gætt, en sjaldan er þó of varlega farið. Litla stúlkan átti heima í Bjarnaborg. Fjöldi fólks safnaðist þegar að þangað sem slysið varð og máttu margir eigi tára bindast, því að svo var þetta hryggileg sjón. Hún lá þar í öngviti hjá brautinni, milli hjóla eimreiðarinnar. En hinum megin við brautarteininn lágu tveir ofurlitlir islenzkir skór og fótur i öðrum. Var sem hann hefði verið kliptur af leggnum.

Daginn eftir birti Morgunblaðið þær hryggilegu fréttir að Guðlaug hafi látist af áverkum sínum, sem voru alvarlegri en grunur lék á í fyrstu:

Stúlkubarnið, sem varð undir járnbrautinni í fyrradag fyrir framan Sláturfélagshúsin, andaðist á spitalanum snemma í gærmorgun. — Hafði barnið orðið fyrir miklu meiri áverka, en menn hugðu í fyrstu. Það misti ekki að eins annan fótinn, heldur urðu læknarnir að taka þá báða af, annan skamt fyrir neðan knéð en hinn um miðjan fótlegg. — Þar að auki lærbrotnaði barnið á tveim stöðum og hkut ýms önnur meiðsl. Það var nær óhugsandi, að það gæti lifað, enda andaðist það nokkru eftir að læknarnir höfðu bundið um það. Slys þetta er eitthvert hryllilegasta og sorglegasta, sem hér hefir borið við um langt skeið. Það hlýtur að fylla menn meðaumkun við foreldrana, sem mist hafa barnið sitt svo sviplega. — En það hlýtur líka að vekja menn til umhugsunar um hvort hér sé farið nm of óvarlega t. d. við hafnargerðina. Því verður ekki neitað, að slysin þar eru farin að verða nokkuð tíð, hverju sem um er að kenna. Það hafa oft heyrst raddir um það, að t. d. járnbrautin fari nokkuð hratt meðfram höfninni, þar sem umferð er mikil. Er það alveg ótækt ef svo er, ekki sízt þegar svo stendur á, að sjálf eimreiðin rekur marga vagna á undan sér. Þá er erfiðara fyrir formanninn að stöðva lestina í skyndi, ef eitthvað ber út af, og þá er ekki víst, að allir hafi gefið nægilegan gaum að gufupípunni og merkinu, sem gefið er. Slys geta ætíð borið að, og þau bera ætíð að, en það verður ekki nógsamlega brýnt fyrir mönnum að gæta sem mestrar varúðar, bæði þeim sem fara eiga með verkfærin og eins hinum, sem af einhverri tilviljun eru þar í nánd. Engum mun hægt að kenna þetta sorglega slys, sem leiddi barnið til bana. — En það má til að verða hvatning öllum að gera sitt ítrasta til þess að fyrirbyggja að slíkt komi fyrir aftur

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -