Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Pólitík

Sakar Trygg­inga­stofnun um að veita rangar upp­lýs­ingar og sýna for­dóma

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Pólitík

Rússar undr­andi á Þorgerði Katrínu

Gabríel Benjamin telur félagsfund Eflingar geta breytt stöðunni: „Allir vita að þetta voru mistök“

Gabríel Benjamin telur félagsfund Eflingar geta breytt stöðunni: „Allir vita að þetta voru mistök“
Gabríel Benjamin. Mynd/skjá­skot: RÚV Mynd: Bragi Valgeirsson

„Ég fagna því að þarna fái félags­menn í raun og veru að láta í sér heyra, segja hvað þeim finnst um þennan gjörn­ing,“ segir Gabríel Benjamin, kjara­mála­full­trúi hjá Eflingu, um fyr­ir­hug­aðan félags­fund stétt­ar­fé­lags­ins. Fund­ur­inn verður hald­inn mið­viku­dag­inn 27. apríl klukkan 18, í Vals­heim­il­inu.

Gabríel Benjamin er trún­að­ar­maður þess starfs­fólks skrif­stofu Eflingar sem er skráð í stétt­ar­fé­lagið VR og tekur það skýrt fram að hann komi þess vegna ekki nálægt skipu­lagn­ingu félags­fund­ar­ins. Honum þyki þetta hins vegar mik­il­vægt tæki­færi fyrir félags­menn Eflingar til að segja hug sinn í tengslum við þá elda sem logað hafa innan félags­ins og hóp­upp­sagn­irnar sem ný stjórn undir for­ystu Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur greip nýverið til. Hann seg­ist telja allar líkur á að þær hóp­upp­sagnir muni hafa áhrif langt út fyrir raðir Eflingar.

„Áhrif sem vara mun lengur heldur en stjórn­ar­tíð núver­andi stjórnar. Hvort sem hún er í sex mán­uði til við­bótar eða tíu ár. Þetta er áfall fyrir félags­menn allra stétt­ar­fé­laga og verka­lýðs­fé­laga á land­inu.

Miðað við þá þjón­ustu og skerð­ingu sem félags­menn verða fyrir núna í þessu ástandi, þar sem skrif­stofan er svo gott sem óstarf­hæf, þá sé ég ekki að þessi aug­lýsti ávinn­ingur nái að dekka það tap sem mun skap­ast á þessum mán­uðum.“

„Þetta er áfall fyrir félags­menn allra stétt­ar­fé­laga og verka­lýðs­fé­laga á land­inu“

Skert þjónusta sem stjórnin ber ábyrgð á

Í dag er Gabríel sjálfur staddur á skrif­stof­unni og segir ekki margt starfs­fólk í vinnu. „Það eru mjög fáir eftir hér. Heilu sviðin liggja niðri.“

Gabríel segir að reynt sé að bjóða upp á bestu þjón­ustu sem hægt er undir þessum kring­um­stæðum. „Ég er kjara­mála­full­trúi og sé meðal ann­ars um ráð­gjöf við félags­menn og að senda út launa­kröfur. Fyrir þetta var ég með 14 launa­kröfur sem ég átti eftir að setja mig inn í. Þetta er 11 manna svið, þannig að það eru ein­hvers­staðar á milli 80 til 150 launa­kröfur sem sitja og bíða eftir því að fólk hafi tíma til að sinna þeim. Við erum að tala um tugi ef ekki hund­ruði millj­óna í launa­kröfum sem við náum lík­leg­ast ekki að fara í.

„Heilu sviðin liggja niðri“

Ég geri ráð fyrir því eins og ástandið er núna að vera bara að taka á móti fólki, svara sím­anum og reyna að halda í við tölvu­póst­inn. Ég sé ekki fyrir mér að í núver­andi ástandi getum við haft tíma til þess að sinna launa­kröfum. Þær launa­kröfur sem ekki er búið að ráð­ast í geta þurft að bíða í marga mán­uði, jafn­vel hálft ár, sem er ólíð­andi fyrir félags­menn Eflingar. Kröf­urnar geta líka margar hverjar fallið niður eða fyrnst og það eru vinnu­brögð sem stjórn Eflingar ber ábyrgð á.“

Sólveig Anna hafi ekki innsýn í ástandið

Hann segir Sólveigu Önnu ekki enn hafa mætt á skrif­stof­una og því sé und­ar­legt að hún tali um að end­ur­skipu­lagn­ingin fylgi áætlun og að allt gangi rétt fyrir sig. „Hún hefur ekki tekið á móti félags­mönnum. Hún hefur enga raun­veru­lega inn­sýn í það hver staðan er.“

Hann segir hana ekki hafa haft sam­band við starfs­fólk um þessar breyt­ingar og að engin yfir­sýn sé í raun­inni til staðar. Hún sjái ekki með eigin augum hvað sé að ger­ast. „Enn og aftur leggur hún meiri áherslu á að virð­ast hafa allt undir stjórn. Að hafa þá ásýnd að það sé verið að vinna þetta fag­lega frekar en í raun og veru að mæta og sjá til þess að þetta sé unnið fag­lega. Að félags­menn verði ekki fyrir skerð­ingu. Það eru þeir sem eru að súpa seyðið af þess­ari ákvörðun.“

Fundurinn gæti haft áhrif

„Ég get sagt það fyrir mig sjálfan að ég sá enga upp­reisn gegn Sólveigu Önnu,“ segir Gabríel. „Það voru yfir 40 manns sem voru ennþá eftir á skrif­stof­unni, sem voru ekki búnir að segja upp. Þeir voru reiðu­búnir til þess að vinna fyrir félags­menn­ina. Hér er eitt­hvað óör­yggi í stjórn­inni, sem telur sig ekki geta treyst öllum eða telur lík­legt að ein­hverjir muni bregða fæti fyrir þau. Þá er ráð­ist í ein­hverjar risa­stórar aðgerðir.“

„Ég sá enga upp­reisn gegn Sólveigu Önnu“

Sá félags­fundur sem fyr­ir­hug­aður er á mið­viku­dag­inn gæti haft áhrif á stöð­una. „Þær ákvarð­anir sem eru teknar á félags­fundi verður stjórnin að virða. Ef félags­fundur kemst að þeirri nið­ur­stöðu að það eigi að draga hóp­upp­sagnir til baka, þá ber stjórn­inni sam­kvæmt lögum að fylgja þeim fyr­ir­mælum. Ef það er lagt fram van­traust, þá situr stjórnin undir van­trausti. Öll fund­ar­sköp gera ráð fyrir því að stjórn ætti nú bara að segja af sér ef það ger­ist.“

Gabríel segir alltaf ómögu­legt að segja til um hvað ger­ist þegar fundir sem þessir séu kall­aðir fram. „Ég veit ekk­ert hvað mun ger­ast. Ég hef enga stjórn á því og stjórnin hefur það ekki heldur. Það getur alveg verið að stjórnin fái upp­reist æru með þessu móti en það getur líka verið að hún verði undir í þessum umræðum. Mér finnst frá­bært að félags­menn fái að láta í sér heyra og fái að hafa áhrif en ég er smá hræddur um það hver langvar­andi áhrif verða fyrir verka­lýðs­fé­lög. Hvort við séum að stefna í það að hér verði bara eitt­hvað heil­agt stríð stjórn­ar­með­lima gegn vind­myllum. Sú bar­átta byggir á sam­sær­is­kenn­ingum. Hvort þetta snú­ist um ein­hver meint yfir­ráð skrif­stofu­fólks. Ég vísa því bara til föð­ur­hús­anna.“

Gabríel seg­ist hafa áhyggjur af því í stóra sam­heng­inu hvað ger­ist ef ástandið sem nú er við lýði haldi áfram. „Hvaða áhrif hefur það á alla verka­lýðs­hreyf­ing­una og fyrir kjara­samn­inga? Það hefur eng­inn verka­lýðs­leið­togi stigið fram og lagt traust eða sett fram stuðn­ing við þessar aðgerðir. Það er eng­inn að fara að gera það. Allir vita að þetta voru mis­tök.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Er Sabrina Pasterski næsti Einstein?

Eftir að hafa smíðað flugvél á unglingsárum rannsakar Sabrina Pasterski nú svarthol, þyngdarafl og eðli rúmtímans.
Innlent

Maður játar að hafa brotið rúður í nærri þrjá­tíu bílum á Sel­tjarn­ar­nesi

Innlent

Erfða­rann­sóknir á Íslend­ingum lyk­il­at­riði í þróun nýs megr­un­ar­lyfs

Innlent

Eyjan sem átti að hverfa árið 2020 stendur enn upp úr sjó

Pólitík

„Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

Innlent

Innlent

Umboðs­maður Alþingis krefur Útlend­inga­stofnun svara

Fjölmargar kvartanir vegna tafa á afgreiðslu umsókna hafa borist umboðsmanni, sem vill skýringar á biðtíma.
Innlent

Drífa segir frjálst val í vændi oft vera blekk­ingu

Innlent

Lög­reglan gerði mis­tök en íslenska ríkið sleppur við bætur

Innlent

Nú er hægt að spjalla við lög­regl­una á net­inu

Innlent

Egill segir íslenska fjöl­miðla fasta í einni mestu fréttagúrku síð­ari ára

Innlent

Fíkni­efna­bóndi í Reykja­vík dæmdur í fang­elsi