Föstudagur 19. apríl, 2024
2.1 C
Reykjavik

Gleðigangan er á laugardaginn! – Allir velkomnir

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Hinsegin dagar hófust í gær og hefur borgin verið skreytt í öllum litum regnbogans. Vert í því að minna á dagskrá daganna en hápunktur hátíðarinnar er sem áður Gleðigangan.

Gleðigangan 2022 verður gengin laugardaginn 6. ágúst. Gangan leggur af stað frá Hallgrímskirkju klukkan 14:00. Gengið verður frá Hallgrímskirkju eftir Skólavörðustíg, Bankastræti, Lækjargötu, Fríkirkjuvegi og endað á Sóleyjargötu við Hljómskálagarðinn þar sem útitónleikar taka við.

Í Gleðigöngunni sameinast lesbíur, hommar, tví- og pankynhneigðir, trans fólk, intersex fólk og aðrir hinsegin einstaklingar ásamt fjölskyldum sínum og vinum til að staðfesta tilveru sína og minna á baráttumál sín. Gangan er í senn kröfuganga hinsegin fólks, sem kallar eftir jafnrétti, vitundarvakningu og útrýmingu mismununar, sem og vettvangur til að fagna því sem hefur unnist í baráttunni.

Á heimasíðunni hinsegindagar.is má finna ítarlegar upplýsingar um hátíðardagskránna.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -