Föstudagur 19. apríl, 2024
-0.9 C
Reykjavik

Glúmur: „Kínverjar þreytast ekki á því að hampa okkur Ólafi Ragnari ötulustu talsmönnum þeirra“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Glúmur Baldvinsson er víðförull maður sem fer sínar leiðir. Hann talar um raunir sínar á athyglisverðan hátt; og stundum, jafnvel oft, er erfitt að greina frá hvort honum sé alvara eður ei.

Á facebook síðu sinni birtir hann mynd og segir:

„Kínverjar þreytast ekki á því að hampa okkur Ólafi Ragnari ötulustu talsmönnum þeirra á norðurskauti fyrir stuðning við mannréttindabrot og stuðning við árásarhneigð Rússa. Takk Kína fyrir að meta okkur að verðleikum. Því miður komst Ólafur Ragnar ekki fyrir á þessari mynd. Beyond my control.“

Hann heldur áfram að skjóta föstum skotum að Ólafi Ragnari Grímssyni og tengsl hans við Kína og Rússland. Í lok mars birti hann færslu sem segir: „Mér var vel tekið við komu okkar Ólafs Ragnars til Kína í dag. Ekki er hægt að greina Ólaf á myndinni að svo stöddu.“

- Auglýsing -

 

Síðustu ár hafa tekið vel á Glúm. Hann hefur staðið í ströngu vegna fjölskyldumála.

Í lok árs fjallaði Mannlíf um brottför hans frá Íslandi, þar sem hann staðfesti að hann myndi aldrei koma aftur:

- Auglýsing -

„Gangið á Guðs vegum og lifi ríkisstjórnin. Gangið á Guðs vegum og lifi ríkisstjórnin. Gleðileg jól. Sjálfur kem ég aldrei aftur.“

Stuttu síðar birtist færsla þar sem hann sagði að:

„Nú hefur saxast nokk á geðheilsu Glúms. Nýlentur frá Ítalíu hinni fögru þar sem á síðasta degi var brotist inn í bíl minn og eigum okkar Korku öllum stolið; tölvum símum og nykeyptu drasli.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -