Fimmtudagur 18. apríl, 2024
2.1 C
Reykjavik

Góðverk fyrir ekkju með ung börn: „Takk fyrir gleðina sem ríkir hjá mínum börnum núna“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Örvar Þór Guðmundsson, sem stofnaði góðgerðarsamtökin Samferða árið 2016 og situr í stjórn þeirra segir frá röð góðverka til einstæðrar móður með tvö ung börn, og verður sagan að teljast sú besta sem lesa má í dag.

Á þriðjudagskvöldið barst ábending til samtakanna um unga ekkju með tvö ung börn sem átti 17 þúsund krónur til að lifa af út mánuðinn. Maður konunnar lést í fyrra. „Þessi ábending snerti okkur mikið,“ segir Örvar Þór. „Það sem meira er, sonur hennar fjögurra ára er með mikla sjónskekkju og var nýbúinn að brjóta óvart ódýr gleraugu sem hann átti.“

Örvar Þór Guðmundsson
Mynd / Facebook

Örvar Þór ákvað að fara óhefðbundna leið í gær og mælti sér mót við fjölskylduna í Kringlunni í gleraugnaverslunni Prooptik.

„Ég ræddi við yfirmann í þeirra verslun og útskýrði stöðu mála. Það stóð ekki á þeirri verslun. Verslunin gaf barninu vönduðustu gleraugun í búðinni sem eru óbrjótanleg og kosta um 60.000 krónur,“ segir Örvar Þór.

Því var næst farið í fataverslun í Kringlunni. Þar fékk móðir að versla boli, sokka, nærföt og skó fyrir börnin og fyrir sig líka. „Þá var þessu ekki lokið. Ég hafði samband við framkvæmdastjóra hjá Cintamani. Eftir að hafa útskýrt fyrir honum stöðu mála þá stóð ekki á þeim heldur. Áttum að koma strax í verslun þeirra inn í Garðabæ. Þar tók hann á móti okkur með sumar og vetrarföt á bæði börnin hennar ásamt úlpu á móðir. Pakki upp á 250.000 krónur.“

Lagði einnig inn á reikning móðurinnar

- Auglýsing -

Örvar Þór kvaddi síðan tárvota móðurina og börnin hennar. „Ekki með faðmlagi (þar sem við hlýðum Víði og virðum 2 metra regluna) heldur hlýlegu brosi,“ segir Örvar Þór, sem lét síðan móðurina vita að hún ætti fyrir mat út mánuðinn, því hann hefur lagt inn á hana frá Samferða 83 þúsund krónur.

„Hún á því til pening fyrir mat fyrir sig og börnin út þennan apríl mánuð og getur mögulega gert eitthvað skemmtilegt fyrir börnin sín líka,“ segir Örvar Þór og þakkar Prooptik og Cintamani fyrir góðvild þeirra.

Móðirin unga, sem kýs að njóta nafnleyndar, sendi Örvari Þór síðan skilaboð og þakkaði kærlega fyrir:

- Auglýsing -

„Sæll Örvar. Mig langaði að þakka þér innilega fyrir allt sem þú gerðir fyrir litlu fjölskylduna mína í gær. Gleðin hjá krökkunum er ólýsanleg. Allt sem þau fengu voru hlutir sem ég hef þurft að láta sitja á hakanum þrátt fyrir að það vantaði nauðsynlega. Fór líka í gær og verslaði stígvél á þau bæði.

Langaði líka að segja þér frá samtali milli mín og sonar míns í gærkvöldi. Hann sagði mér að hann væri alveg viss um að þú værir vinur guðs. Því hann var sko búinn að biðja guð að fá svona úlpu (svarta með loðkraga). Hann er búinn að biðja um svona úlpu í marga mánuði en ég hef ekki haft efni á henni. Svo spurði hann mig hvort ég gæti ekki beðið þig að skila til pabba að hann elskaði hann og saknaði hans. Því jú hann er alveg viss um að þú ert góðvinur guðs þannig þetta var svo sjálfsagt í hans unga huga. Ég held að ég geti aldrei komið alminnilega í orð þakklætinu sem ég finn fyrir. Og hversu ótrúlega mikil hjálp þetta var. Takk fyrir okkur og takk fyrir gleðina sem ríkir hjá mínum börnum núna.“

Ellefu styrkþegar látnir síðustu 14 mánuði

Örvar Þór segir síðan frá því að Samferða hafi í flestum tilvikum síðustu ár styrkt þá allra veikustu hér á landi.

„Alltaf er um að ræða fjárstyrk. Oft er þetta fólk sem er að berjast við krabbamein. Bara á síðustu 14 mánuðum eru 11 einstaklingar látnir sem við höfum verið að styrkja. Fólk á aldrinum 25-70 ára. Yndisleg kona sem við höfum styrkt mikið síðustu ár tapaði sinni baráttu á mánudagskvöldið og kvaddi okkar jarðvist – góða ferð elsku Begga,“ segir Örvar Þór.

„Ég líkt og Martin Luther King á mér draum. Ef allir Íslendingar myndu deila og styrkja okkar samtök um 500 krónur í dag eða á næstu mánuðum þá getum við auðveldlega haldið okkar starfi áfram næstu 10 árin í það minnsta. Getum hjálpað mörg hundruð fjölskyldum á hverju ári. Það þarf ekki meira til. Bara 500 kall. Ertu til í það?,“ segir Örvar Þór.

Þeir sem vilja styrkja starf Samferða geta lagt inn á
reikningur 0327-26-114
kennitala 651116-2870

Einnig er hægt að hringja í 900 númer Samferða:
907-1081 – gefur 1000 krónur
907-1083 – gefur 3000 krónur
907-1085 – gefur 5000 krónur
907-1090 – gefur 10000 krónur

Allir einstaklingar sem starfa í stjórn Samferða gefa vinnu sína, auk þess er enginn kostnaður. „Sökum þess gefum við alltaf allt sem safnast,“ segir Örvar Þór. Ábendingar og/eða fyrirspurnir má senda í gegnum Facebook-síðu Samferða.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -