Föstudagur 29. mars, 2024
2.8 C
Reykjavik

Grunaður um að hafa banað móður sinni

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Karlmaður um þrítugt var í gærkvöldi úrskurðaður í ellefu daga gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness, eða til 17. apríl, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu

Maðurinn er grunaður um að hafa orðið móður sinni að bana, og er banameinið talið vera hnífstunga.

Sjá einnig: Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna andláts í Hafnarfirði

Lögreglu barst tilkynning um klukkan hálf tvö aðfararnótt mánudags og fannst konan, sem var um sextugt, látin á heimili sínu í Hafnarfirði þegar lögregla kom á staðinn.

Maðurinn var handtekinn á vettvangi.  Annar karlmaður sem var einnig handtekinn á vettvangi er laus úr haldi lögreglu.

 

- Auglýsing -

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -