- Auglýsing -
Karlmaður á fertugsaldri hefur verið úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald, grunaður um alvarleg kynferðis- og ofbeldisbrot.
Karlmaður á fertugsaldri var í fyrradag úrskurðaður í Héraðsdómi Reykjavíkur í tveggja vikna gæsluvarðhald að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á alvarlegum kynferðis- og ofbeldisbrotum.
Maðurinn er grunaður um að hafa brotið gegn tveimur konum í aðskildum málum á höfuðborgarsvæðinu um verslunarmannahelgina. Úrskurðurinn hefur verið kærður til Landsréttar.
Segir lögreglan að ekki sé hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.