Grunnskóladrengur var stoppaður í Grafarholti fyrir of hraðan akstur á rafhlaupahjóli.
Í gær var lögreglan við hraðamælingar á Þúsöld í Grafarholti. Samkvæmt henni var brotahlutfallið 10 prósent sem telst ekki til sérstakra tíðinda. „Hitt er alvarlegra að einn þeirra sem var staðinn að hraðakstri var grunnskólapiltur á rafhlaupahjóli,“ segir í tilkynningu lögreglunnar. Hraði hjólsins mældist á 59 km/klst en þar er 50 kílómetra hámarkshraði. Þar að auki reyndist pilturinn hjálmlaus sem og farþegi hans á hjólinu, sem var annar drengur á grunnskólaaldri. „Ekki þarf að hafa mörg orð um afleiðingar þess ef hjólreiðamanninum hefði fipast við aksturinn, en þá hefði þessi ökuferð endað mjög illa!“ segir í tilkynningu lögreglunnar.