Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Pólitík

Sakar Trygg­inga­stofnun um að veita rangar upp­lýs­ingar og sýna for­dóma

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Pólitík

Glúmur segir Ólaf Ragnar „mesta vind­hana sem Ísland hefir fætt og klætt“

Guðmundi lækni var hótað fangelsisvist: ,,Mér var bannað að lækna fólk”

Guðmundi lækni var hótað fangelsisvist: ,,Mér var bannað að lækna fólk”

Guð­mundur Karl Snæ­björns­son, sér­fræð­ingur í heim­il­is­lækn­ingum, full­yrðir að honum hafi verið hótað fang­els­is­vist fyrir að skrifa upp á Ivermectin-lyfið í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum. Með því vill hann meina að honum hafi verið bannað að lækna fólk á sama tíma og margir kollegar hans hafi fengið millj­ónir frá lyfja­fyr­ir­tækjum. Því heldur Guð­mundur að minnsta kosti fram.

Guð­mundur Karl er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar. Hann seg­ist hafa orðið fyrir miklum árásum fyrir að ganga gegn meg­in­straumnum í Covid far­aldr­inum „Flest allir kollegar mínir sem tjáðu sig mest hér á landi, til að mynda læknar á lands­spít­al­anum hafa fengið millj­ónir í styrki frá lyfja­fyr­ir­tækjum. Ég er ekki að segja að þeir séu ekki vel mein­andi og eflaust gengur þeim gott til, en þeir eru ekki óháðir. Fólk sem hefur haft millj­ónir í rann­sókn­ar­styrki frá lyfja­fyr­ir­tækjum er eðli máls­ins sam­kvæmt ekki frjálst og óháð,“ segir Guð­mundur Karl, sem vill meina að Covid tíma­bilið hafi sýnt okkur mik­il­vægi þess að við förum í ákveðna nafla­skoðun varð­andi rist­koðun og óvin­sælar skoð­anir:

„Fólk er auð­vitað upp til hópa orðið leitt á umræðum um Covid, en þessi far­aldur sýndi okkur ákveðna hluti sem mega ekki end­ur­taka sig. Það getur ekki verið í lagi að banna upp­lýs­ingar og að það sé bara sett ein lína sem eng­inn má véfengja. Eins erum við komin á mjög hálan ís þegar þraut­reyndum læknum er bannað að fara eftir sann­fær­ingu sinni og þeir í raun þving­aðir til að brjóta læknaeið­inn. Heim­il­is­læknum var á ákveð­inn hátt bannað að stunda sínar lækn­ingar. Ég er sér­fræð­ingur í heim­il­is­lækn­ingum til ára­tuga og lá yfir gögnum og rann­sóknum frá upp­hafi far­ald­urs­ins, en ég mátti ekki nota þær með­ferður sem allt benti til að væri best. Réttur lækna til að lækna er í raun orð­inn skertur eftir þetta tíma­bil,“ segir Guð­mundur og nefnir þar meðal ann­ars lyfið Ivermectin, sem var að hans sögn gert að ein­hvers konar sam­nefni fyrir sam­sær­is­kenn­inga­fólk og ruglu­dalla:

„Þetta er þraut­reynt lyf sem er nán­ast algjör­lega án auka­verk­ana og hefur verið notað í ára­tugi á millj­ónir manna. Rann­sókn­irnar bentu strax til þess að þetta til­tekna lyf væri að gefa frá­bæra raun sem ein af með­ferð­unum við Covid. En ein­hverra hluta vegna var Ivermectin gert að ein­hvers konar bann­orði. Lyf sem er með færri auka­verk­anir en pan­odil og hefur verið gefið í 4 millj­örðum skammta til mann­fólks í gegnum tíð­ina. Við hljótum að geta verið sam­mála að það sé eitt­hvað skrýtið við þessi ofsa­fengnu við­brögð gagn­vart þeim læknum sem vildu nota þetta lyf. Ég var kærður af lyfja­stofnun og mér var hótað fang­els­is­vist eins og ég væri að gera eitt­hvað stór­hættu­legt,“ segir Guð­mundur og heldur áfram:

„Ég vil ekk­ert vera að naga í fjöl­miðl­ana, en það gerð­ist oftar en einu sinni í Covid-tíma­bil­inu að íslenskir blaða­menn hringdu í mig og vildu fá upp­lýs­ingar, en sögðu svo að þeir mættu ekki hafa neitt eftir mér. Vænt­an­lega af því að ég var ekki á sömu skoðun og yfir­völd. Ég efast ekki um að þetta fólk sé að gera sitt besta, en aftur, þá er bara svo auð­velt að sjálfs­rit­skoða sig þegar pressan er jafn­mikil og hún var þegar far­ald­ur­inn stóð sem hæst. Þeir sem héldu fram öðrum skoð­unum en sótt­varn­ar­yf­ir­völd fengu á sig alls konar árásir og voru kall­aðir álhattar eða sam­sær­is­kenn­inga­fólk,“ segir Guð­mundur og bætir við að það hafi gerst oftar en einu sinni að fólk hafi svo snögg­lega skipt um skoðun þegar það veikt­ist sjálft af Covid:

„Það gerð­ist oft að fólk sem hafði haft sterkar skoð­anir á Ivermectin opin­ber­lega og tekið undir með meg­in­straumsum­ræð­unni hafði svo per­sónu­lega sam­band við mig til að reyna að verða sér úti um lyfið.“

Viðtal Sölva við Guðmund Karl og öll við­töl og podcöst Sölva Tryggva­sonar má nálg­ast hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Er Sabrina Pasterski næsti Einstein?

Eftir að hafa smíðað flugvél á unglingsárum rannsakar Sabrina Pasterski nú svarthol, þyngdarafl og eðli rúmtímans.
Innlent

Maður játar að hafa brotið rúður í nærri þrjá­tíu bílum á Sel­tjarn­ar­nesi

Innlent

Erfða­rann­sóknir á Íslend­ingum lyk­il­at­riði í þróun nýs megr­un­ar­lyfs

Innlent

Eyjan sem átti að hverfa árið 2020 stendur enn upp úr sjó

Pólitík

„Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

Innlent

Innlent

Umboðs­maður Alþingis krefur Útlend­inga­stofnun svara

Fjölmargar kvartanir vegna tafa á afgreiðslu umsókna hafa borist umboðsmanni, sem vill skýringar á biðtíma.
Innlent

Drífa segir frjálst val í vændi oft vera blekk­ingu

Innlent

Lög­reglan gerði mis­tök en íslenska ríkið sleppur við bætur

Innlent

Nú er hægt að spjalla við lög­regl­una á net­inu

Innlent

Egill segir íslenska fjöl­miðla fasta í einni mestu fréttagúrku síð­ari ára

Innlent

Fíkni­efna­bóndi í Reykja­vík dæmdur í fang­elsi