Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Pólitík

Sakar Trygg­inga­stofnun um að veita rangar upp­lýs­ingar og sýna for­dóma

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Pólitík

Rússar undr­andi á Þorgerði Katrínu

Guðmundur Árni blæs til sóknar í Hafnarfirði: Skjálfti í Sjálfstæðismönnum

Guðmundur Árni blæs til sóknar í Hafnarfirði: Skjálfti í Sjálfstæðismönnum
Guð­mundur Árni Stef­áns­son Mynd: Sigurjon Ragnar tel +35489799667

Allt lítur út fyrir að Sam­fylk­ingin og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn muni berj­ast um sig­ur­inn í í Hafn­ar­firði í kom­andi sveita­stjórn­ar­kosn­ingum, en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur verið við völd í Hafn­ar­firði síð­ustu átta árin.Samkvæmt heim­ildum Mannlífs innan stjórn­kerfis Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar er kom­inn tals­verður skjálfti í Sjálf­stæð­is­menn vegna góðs gengis Sam­fylk­ing­ar­innar í nokkrum skoð­ana­könn­unum sem flokk­arnir í Hafn­ar­firði hafa keypt; í könn­unum er að sjá að Sam­fylk­ingin hefur stór­aukið við fylgi sitt en að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tapi tals­verðu fylgi, en fram­sókn haldi sínum eina manni. Viðreisn og Píratar virð­ast einnig á blaði, en aðrir flokkar, Bæj­ar­listi, Mið­flokkur og VG langt frá kjörnum bæj­ar­full­trúa.Svakaleg end­ur­koma Guð­mundar Árna úr sendi­herra­störfum úti í heimi í  bæj­arpóli­tík­ina í Hafn­ar­firði gjör­breytti lands­lag­inu þar í bæ. Eða eins og einn við­mæl­andi Mannlífs orð­aði það:„Gamli (Guð­mundur Árni) er í fanta­formi og út um allan bæ í heim­sóknum til félaga­sam­taka og fyr­ir­tækja. Svaka­legur kraftur í honum – hann er eins og ung­lamb; alveg á útopnu og greini­legt að mik­ill hugur er í honum og öllu Sam­fylk­ing­ar­fólki sem og mörgum öðrum í Hafn­ar­firði sem heill­ast hafa af Guðmundi Árna, enda er hann mik­ill leið­togi.“Margir innan stjórn­kerfis Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar sem og hinn almenni Hafn­firð­ingur hafa nefnt það við blaða­mann Mannlífs að þeim finn­ist vera komin mikil þreyta í bæj­ar­stjórn­ina og að þeim hugn­ist vel breyt­ingar:„Rósa er í erf­iðri stöðu og hún hefur ekki verið sann­fær­andi í kosn­inga­bar­átt­unni hingað til. Rósa gerði sér enga grein fyrir hversu gríð­ar­leg mis­tök hún væri að gera með því að selja hlut Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar í HS Veitum, upp á tæpa 4 millj­arða króna. Af nógu öðru er svo sem að taka, en þetta mál, þessi sala, hún mun lík­leg­ast reyn­ast Rósu mjög erfið, eða verður jafn­vel bara bana­biti hennar í kosn­ing­unum nú, enda margir Hafn­firð­ingar mjög reiðir yfir áður­nefndri sölu,“ segir einn heim­ild­ar­maður Mannlífs innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Hafn­ar­firði.Þeir fjölda­mörgu sem Mannlíf hefur rætt við varð­andi kosn­ing­arnar segja flestir að þeir búist við að bar­áttan um Hafn­ar­fjörð munu snú­ast um tvo turna, Sam­fylk­ing­una og Sjálf­stæð­is­flokk og þá um leið for­ystu­fólk þess­ara flokka, Guðmund Árna Stef­áns­son og Rósu Guð­bjarts­dóttur. Hvort þeirra mun verða í önd­vegi við stjórn bæj­ar­ins?Eins og staðan er í dag þurfa Sjálf­stæð­is­menn að hysja upp um sig bux­urnar svo ekki fari illa fyrir þeim – Sam­fylk­ingin með Guðmund Árna í topp­formi er komin vel fram úr Sjálf­stæð­is­flokknum, það sýna vel kann­anir sem flokk­arnir sjálfir hafa látið gera; þá hvítn­uðu mörg and­lit Sjálf­stæð­is­manna í Hafn­ar­firði.Ljóst er að bar­áttan um Hafn­ar­fjörð verður hörð þar sem Sam­fylk­ing og Sjálf­stæð­is­flokkur virð­ast ætla að berj­ast um sig­ur­inn; þó má ekki úti­loka aðra flokka sem munu vænt­an­lega hafa mikið að segja um skipan í nýjum meiri­hluta í vor, en ekki er talið lík­legt að ein­hver einn flokkur fái hreinan meiri­hluta:  Það gerði Sam­fylk­ingin 2002 og 2006 . En það gerð­ist líka 1990 – þá vann Alþýðu­flokk­ur­inn undir stjórn Guð­mundar Árna stóran sigur í Hafn­ar­firði, hlaut 6 menn kjörna af 11 mögu­legum. Og nú er hann kom­inn aftur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Er Sabrina Pasterski næsti Einstein?

Eftir að hafa smíðað flugvél á unglingsárum rannsakar Sabrina Pasterski nú svarthol, þyngdarafl og eðli rúmtímans.
Innlent

Maður játar að hafa brotið rúður í nærri þrjá­tíu bílum á Sel­tjarn­ar­nesi

Innlent

Erfða­rann­sóknir á Íslend­ingum lyk­il­at­riði í þróun nýs megr­un­ar­lyfs

Innlent

Eyjan sem átti að hverfa árið 2020 stendur enn upp úr sjó

Pólitík

„Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

Innlent

Innlent

Umboðs­maður Alþingis krefur Útlend­inga­stofnun svara

Fjölmargar kvartanir vegna tafa á afgreiðslu umsókna hafa borist umboðsmanni, sem vill skýringar á biðtíma.
Innlent

Drífa segir frjálst val í vændi oft vera blekk­ingu

Innlent

Lög­reglan gerði mis­tök en íslenska ríkið sleppur við bætur

Innlent

Nú er hægt að spjalla við lög­regl­una á net­inu

Innlent

Egill segir íslenska fjöl­miðla fasta í einni mestu fréttagúrku síð­ari ára

Innlent

Fíkni­efna­bóndi í Reykja­vík dæmdur í fang­elsi