Mánudagur 15. apríl, 2024
-0.9 C
Reykjavik

Guðni Már Henningsson lést á Tenerife: „Hans verður saknað um ókomna tíð enda drengur góður“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Guðni Már Henningsson, fyrrverandi útvarpsmaður, er látinn, 69 ára að aldri. Hann lést á heimili sínu í höfuðborg Tenerife, Santa Cruz de Tenerife. Þar hafði hann búið frá árinu 2018.

Margir muna eflaust eftir Guðna úr þættinum Næturvaktinni á Rás 2, en honum stjórnaði Guðni af mikilli prýði um langt skeið.

Auk starfa sinna í útvarpi gaf Guðni út bækur, ljóðabækur, hélt fjölda myndlistasýninga og á einnig bakgrunn í tónlist. Árið 2019 gaf Guðni út bókina Römblusögur, en í bókinni segir Guðni kímnisögur af sjálfum sér og því fólki sem hann hafði kynnst í Römbluhverfinu í Santa Cruz á Tenerife.

Eins og áður sagði fluttist Guðni til Tenerife árið 2018, þegar hann settist í helgan stein og hætti sem þáttastjórnandi á Rás 2. Lífið á Tenerife var honum mjög að skapi.

„Hér vil ég vera það sem eftir er,“ sagði Guðni meðal annars um búsetuna á eyjunni sólríku.

Anna Kristjánsdóttir vélstjóri, góð vinkona Guðna heitins og sem einnig býr á Tenerife, fékk hin hörmulegu tíðindi í gærkvöldi. „Í nótt bárust mér harmafregnir. Eftir beiðni frá ræðismanni Íslands á Kanaríeyjum braut lögreglan sér leið inn á heimili félaga míns á Tenerife í gærkvöldi þar sem hann fannst látinn. Hans verður saknað um ókomna tíð enda drengur góður. Dætur hans tvær sem og barnabarn eiga alla mína samúð,“ segir Anna í færslu á Facebook.

- Auglýsing -
Þegar Guðni var spurður að því í samtali við Hringbraut árið 2020 hvers hann saknaði frá Íslandi sagðist Guðni sakna dætra sinna:

„Ég sakna þeirra mest. En fyrir utan það.. mér dettur ekkert í hug skal ég segja þér. Stundum langar mig jú í ís­lenskan mat eins og salt­kjöt og hangi­kjöt og ham­borgar­hrygg. Og þegar ég sé myndir af miklum snjó þá hefur mig langað að taka smá rúnt á jeppa.“

Guðni sat sannarlega ekki auðum höndum á Tenerife, en þar opnaði hann meðal annars myndlistasýningu á íslenska barnum árið 2018, skrifaði fyrrnefna bók og ljóðabókina Þar sem kaffið kólnar.

Guðni Már við störf á Rás 2

„Svo ég tók þá ákvörðun, eða kannski var hún alltaf þarna, að selja mín­ar fáu eig­ur, segja upp á Rás 2 og flytja til Santa Cruz. Hingað kom ég með þrjá svarta boli og hundrað kíló af geisladisk­um. Gat ekki tekið meira með mér. Eig­in­lega frá fyrsta degi fannst mér ég vera kom­inn heim,“ sagði Guðni um flutningana í samtali við mbl.is árið 2018.

- Auglýsing -

„Og ég lærði að elska upp á nýtt. Dæt­ur mín­ar tvær, vini og fjöl­skyldu. Það var mér dýr­mætt og ég er þakk­lát­ur fyr­ir það. Ég hóf að skrifa og mála á ný og lífs­gleðin kom aft­ur og ég hef ekki orðið einmana hérna þótt oft sé ég einn. Og aldrei fundið fyr­ir heimþrá,“ sagði Guðni í sama viðtali.

Blessuð sé minning Guðna Más Henningssonar.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -