Fimmtudagur 18. apríl, 2024
1.1 C
Reykjavik

Guðni sendir kveðjur vestur

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Guðni Th. Jó­hann­es­son, for­seti Íslands, sendir kveðjur til íbúa á Vestfjörðum í nýrri færslu á Facebook. „Ég sendi hlýjar kveðjur vestur á firði og einlægar þakkir til allra sem brugðust við og sinntu nauðsynlegum störfum eftir snjóflóðin á Flateyri og í Súgandafirði. Blessunarlega varð ekki mannskaði, annað tjón er unnt að bæta,“ skrifar Guðni.

„Enn vorum við minnt á ægimátt náttúruaflanna. Um leið sönnuðu gildi sitt varnargarðarnir, sem reistir voru á Flateyri eftir flóðið mikla fyrir aldarfjórðungi, þótt litlu hafi mátt muna nú – slíkur var hamfarakrafturinn þar,“ skrifar Guðni í færsluna.

Þá segir hann frá því að á fundi hans og Katrínar Jakobsdóttur hafi hún frætt hann um fund hennar með almannavörnum í samhæfingarmiðstöðinni í Skógarhlíð í morgun og þær upplýsingar sem þar komu fram.

„Sem betur fer virðist veður nú ganga niður á Vestfjörðum en áfram þarf að hafa vara á, flytja fólk og vistir og veita fólki stuðning og aðstoð eins og þörf krefur. Ég ítreka góðar kveðjur og þakkir. Á þessum stundum sannast gildi samstöðu og samkenndar.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -