Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Gylfi Þór að verða samningslaus á Englandi – Ólíklegt að hann verði áfram

Gylfi Þór Sigurðsson
Gylfi Þór Sig­urðs­son

Næsta sumar renna út samningar sex leikmanna hjá Everton. Liverpool Echo segir frá þessu og veltir því fyrir sér hverjir þeirra eigi framíð fyrir sig á Goodison Park. Gylfi Þór Sigurðsson er einn sexmenninganna.

Fotbolti.net segir frá málinu í dag. Þann 1. janúar mega þessir sex leikmenn eiga í samræðum við erlend félög um mögulegan samning.

Af þeim sex leik­mönnum sem um ræðir kom helmingur þeirra til Everton á frjálsri sölu en alls kostuðu hinir þrír ríflega 80. milljónir punda, samanlagt.

Leik­mennirnir eru þeir Andy Lonergan (38, mark­vörður), Asmir Begovic (34, mark­vörður), Cenk Tosun (30, sóknar­maður), Fabian Delph (32, miðvörður), Jonjoe Kenny (24, varnar­maður) og Gylfi Þór Sigurðsson (32, miðju­maður).

Liverpool Echo telur líklegast að allir nema mark­verðirnir verði látnir fara.

Í breska miðlinum segir að Gylfi Þór hafi kostað metfé eða 45 milljónir punda, þegar hann kom frá Swansea árið 2017. Hann hafi svo spilað 156 leiki með liðinu og skorað í þeim 31 mark. Telja þeir líklegt að hann verði látinn fara. Hefur hann ekki spilað á tíma­bilinu og ekki verið skráður í hópinn í úrvarlsdeildinni.

Gylfi Þór var eins og alþjóð veit, hand­tekinn í júlí á þessu ári, grunaður um kynferðis­brot gegn ólögráða einstaklingi en var svo sleppt gegn tryggingu í kjölfarið. Hefur hann haldið sig í íbúð sem Everton útvegaði honum og hefur fjöl­skylda hans á Íslandi verið með honum þar á árinu, honum til stuðnings. Annað er hægt að segja um eiginkonu Gylfa, Alexöndru Helgu Ívars­dóttur, sem fór til Íslands með nýfætt barn þeirra hjóna og býr þar nú, að minnsta kosti á meðan rannsókn stendur yfir.

Sjá einnig: Alexandra flutt út – Gylfi Þór vaktaður allan sólar­hringinn

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra