Föstudagur 19. apríl, 2024
2.1 C
Reykjavik

Hafa þurft að biðja fólk um að hamstra ekki spritt

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Mikil söluaukning hefur orðið á spritti í Lyfju vegna útbreiðslu COVID-19 en hálfs árs birgðir hafa verið að fara á um mánuði. Þetta kemur fram í viðtali VB við framkvæmdastjóra Lyfju, Sigríði Margréti Oddsdóttur.

Sigríður segir að á tímabili hafi starfsfólk þurft að biðja viðskiptavini um að hamstra ekki handspritt og taka bara einn brúsa á mann.

Sigríður segir engan skort vera á handspritti en að það hafi þó verið krefjandi að tryggja framboð á góðu handspritti í verslunum Lyfju. „Vissulega koma dagar þar sem birgðir klárast í tilteknum verslunum á tilteknum tímum,“ segir Sigríður í samtali við VB.

Sigríður minnir fólk á að henda ekki handpumpum af handsprittbrúsum, sótthreinsivörum og sápum þar sem skortur er á slíkum pumpum á heimsvísu.

Sjá einnig: Alls ekki henda handpumpum af handsprittbrúsum! Tilmælin koma frá Umhverfisstofnun og Landlækni

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -