Þriðjudagur 23. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Halla hættir hjá ASÍ: „Ekki leyndar­­mál að ég kom til starfa hjá ASÍ til að vinna með Drífu“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Halla Gunnars­dóttir er að hætta sem fram­kvæmda­stjóri ASÍ, en frá þessu greinir hún sjálf í færslu á Face­book-síðu sinni. Sem stendur er Halla í fæðingar­or­lofi; segir að hún muni ekki snúa aftur til starfa þegar fæðingar­or­lofinu lýkur:

„Ég hef tekið þá á­­kvörðun að snúa ekki til baka til starfa sem fram­­kvæmda­­stjóri ASÍ að loknu fæðingar­or­lofi. Það er ekkert leyndar­­mál að ég kom til starfa hjá ASÍ til að vinna með Drífu Snæ­­dal. Ég tel bæði rétt og eðli­­legt að nýr for­­seti fái til sín fram­­kvæmda­­stjóra sem hann treystir og á trúnað hjá. Á næstu vikum mun ég skila af mér og vera nýjum for­­seta og fram­­kvæmda­­stjóra innan handar eftir þörfum, en síðan skilja leiðir,“ skrifar hún og bætir við:

Drífa Snædal.

„Ég er stolt af þeim verk­efnum sem ég hef komið að hjá ASÍ. Ég lagðist á árarnar með Drífu að vinna að þeim málum sem hún hafði sett á oddinn, sem lutu m.a. að bar­áttu gegn mis­­skiptingu og ó­­­jöfnuði og glæpa­­starf­­semi á vinnu­­markaði, sem og bar­áttu fyrir hús­­næði á við­ráðan­­legum kjörum. Við fengum eina co­vid-kreppu í fangið sem kallaði á kröftug við­­brögð verka­­lýðs­hreyfingarinnar. Við sóttum í þekkingu um allan heim til að standa fast gegn niður­­­skurðar­hnífnum sem margir vildu hefja á loft þegar í stað. (Nú er búið að brýna hann að nýju, en það er efni í annan pistil). Við byggðum upp frekari sér­­­fræði­þekkingu innan skrif­­stofunnar til að mæta á­róðri sér­­hags­muna­aflanna sem vilja sí­­fellt skara eld að eigin köku á kostnað okkar hinna.

Við jukum við getuna til að koma okkar skila­­boðum á fram­­færi með mark­vissum og hnit­miðuðum hætti.

Hún nefnir dæmi:

„Til marks um það var ASÍ næstum því tvö­falt oftar í fréttum en SA á síðasta ári.

- Auglýsing -

Hún nefnir einnig að „ASÍ getur ekki verið öflugra en aðildar­­fé­lögin vilja hverju sinni. Síðustu ár hafa ein­­kennst af hat­rammri valda­bar­áttu og niður­­rifi, eins og komið hefur fram opin­ber­­lega. Vinnu­skil­yrðin hafa oft verið ó­­bæri­­leg. Starfs­­fólk ASÍ, þar á meðal ég, hefur verið dregið inn í opin­bera um­­ræðu þar sem það á erfitt með að svara fyrir sig. Að mínu mati hefur þetta dregið þrótt úr hreyfingunni, sem kemur niður á launa­­fólki og al­­menningi á Ís­landi.“

Halla á von því á komandi þingi að „ASÍ takist að leysa ein­hverja af þeim hnútum sem hafa verið hnýttir á síðustu misserum og komast að minnsta kosti að sam­komu­lagi um hvernig sam­bandið á að halda á spilunum þennan vetur kjara­við­ræðna.

Launa­­fólk á Ís­landi á verka­­lýðs­hreyfinguna og það er okkar allra að standa vörð um sam­einaða og öfluga verka­­lýðs­hreyfingu á Ís­landi. Við eigum mikið undir henni. Ég óska for­­mönnum aðildar­­fé­laga ASÍ, stjórnum þeirra og starfs­­fólki, kjörnum full­­trúum og skrif­­stofu ASÍ alls góðs og þakka fyrir mig að sinni,“ ritar Halla að endingu.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -