Fimmtudagur 12. desember, 2024
4.8 C
Reykjavik

Halla sendi Spánarkonungi samúðarkveðju vegna hamfaraflóðanna

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Halla Tómasdóttir sendi Spánarkonungi samúðarkveðju sína í dag vegna hamfaraflóðanna í Valensía-héraði í suðurhluta Spánar.

Fram kemur í fréttatilkynningu frá forsetaembættinu að forseti Íslands, Halla Tómasdóttir hafi sent í dag samúðarkveðju sína og íslensku þjóðarinnar til Filippusar VI Spánarkonungs vegna þeirra hamfaraflóða sem orðið hafa í Valensía-héraði í suðurhluta Spánar. Hátt á annað hundrað manns hefur látist í flóðunum og hefur þriggja daga þjóðarsorg verið lýst yfir landinu. Flóðinn eru sögð þau mestu á Spáni í áratugi.

Í bréfinu vottar forseti Spánverjum samúð og segir hug íslensku þjóðarinnar vera hjá aðstandendum hinna látnu og öðrum sem eigi um  sárt að binda. Fjöldi Íslendinga sé búsettur á Spáni og deili hinni miklu  sorg með spænsku þjóðinni, eins og aðrir Íslendingar.  

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -