Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Handboltastjarna sem þarfnast orkudrykkja: „Klæði upp og niður eftir þörfum“

Hafdís Shizuka Iura er kennari og handboltastjarna sem gerir pítsasóu og drekkur orkudrykki
Hafdís Shizuka Iura er kenn­ari og hand­bolta­stjarna sem gerir pít­sa­sóu og drekkur orku­drykki

Hafdís Shizuka Iura er 29 ára Íslend­ingur, Japani og Þjóðverji. Hafdís er grunn­skóla­kennari við Álfta­mýrarskóla og handbolta­leikmaður með Víkingi. Hafdís er í sambúð með Andra Þór Helgasyni, handbolta­manni, saman eiga þau Sól Akari og bónus­barnið Elmu Láru og búa þau saman í Foss­voginum. Handbolti er stór hluti af hennar lífi en hún hefur æft handbolta frá sex ára aldri og þjálfað frá 19 ára aldri. Hafdís er uppalinn Framari sem segist vera með blátt hjarta. Hafdís er neytandi vikunnar.

Gerir þú verðsamanburð á vörum og þjónustu?

Já geri það sérstak­lega með nauðsynja­vörur eins og matvörur. Versla oftast í Bónus en fer svo í Krónuna ef mig vantar eitthvað sem fæst einungis þar. Ég er síðan svakalega metnaðar­full í að finna besta verðið á öðrum vörum og þjónustu sem ég kaupi og get eytt alltof löngum tíma í að flakka á milli vefsíðna. En það borgar sig alltaf að lokum og hefur sparað mér marga þúsund­kalla í gegnum tíðina. Ég er samt líka tilbúin að borga aðeins hærra verð fyrir vörur og þjónustu þegar aðrir þættir spila inn í, til dæmis þjónustu­lund, þægindi og stefna fyrir­tækja.

Hvernig sparar þú í matarinnkaupum?

Fyrst og fremst með því að gera innkaupa­lista áður en ég fer í búðina og versla í lágvöruverslunum. Það er magnað hvað endar í körfunni þegar listinn er ekki til staðar. Ég kaupi frosnar vörur sem eru töluvert ódýrari og ég finn ekki mun á flestu, enda ekki Gordon Ramsey. En hef komið auga á mikinn verðmun á tilbúnum vörum og reyni frekar að martreiða frá grunni. Er orðin svakalega góð í að gera pizzu- og pasta­sósur! En annars er ég búin að finna ágætan takt í að velja ákveðnar matvörur frá hinum og þessum vöru­merkjum og hef þá betur tilfinningu fyrir verði og verð­breytingum.

Endurnýtir þú? Ertu með ráð til annarra?

Já það geri ég – en mætti að sjálfsögðu bæta. Ég fór þó ekki að huga almennilega að því fyrr en við fluttum í okkar eigin húsnæði og síðar þegar ég eignaðist barn. Þá fór ég að skoða síður með notuðum vörum og þar er mjög oft hægt að finna alls kyns hluti sem eru í topp­standi og á lægra verði en nýjar vörur. Mamma er líka með fullan lager af alls kyns dóti heima hjá sér og ef mig vantar eitthvað þá hringi ég í hana fyrst. Yfirleitt á hún það til! Annars er ég að finna mér nýja ástríðu í lífinu og það er að gera upp húsgögn og annað. Ég lakkaði eldhús­innréttinguna okkar og hef verið að dunda mér með gamlar kommóður og hirslur. Ef ég ætti að gefa eitt ráð varðandi endur­nýtingu er að fólk sé duglegra að fá lánað, skiptast á hlutum, spyrjast fyrir um eða bjóða fram það sem ekki er not fyrir lengur.

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Gæði umfram magn. Með matvörur er það þó að spara eins og ég get en leyfi mér líka af og til að kaupa meiri gæði. Ég kaupi miklu minna af fatnaði í dag en ég gerði áður. Núna á ég bara ákveðinn grunn­fatnað sem vinn með og klæði upp og niður eftir þörfum. Ég spái mikið í notagildi þegar ég fjárfesti í flík og reyni eftir bestu getu að kaupa endingar­góðar vörur. Sömuleiðis huga ég mikið að notagildi þegar ég kaupi gjafir. Ég elska sjálf að fá gjafir sem ég sé mikil not fyrir. Mér finnst alltaf góð hugmynd að gefa upplifun í gjöf – það þarf ekki alltaf að vera hlutur.

Hverju átt þú erfiðast með að draga úr kaupum á?

Ég hugsa að það væri barna­vörur. Þetta er mitt fyrsta barn og ég á stundum erfitt með að átta mig á því hvað er nauðsynlegt og hvað ekki. Ég hef stundum keypt föt og vörur sem við höfðum svo lítil sem engin not fyrir. En ég er þó dugleg að gefa það áfram í von um að einhver nýti það betur. Svo má einnig nefna orku­drykki. En eins og staðan er núna er einn slíkur oft það sem bjargar þreyttri konu og ég er ekki alveg tilbúin að gefa það frá mér alveg strax.

Skiptir umhverfisvernd þig máli?

Já hún gerir það. Ég lifi samt ekki hinum fullkomna lífsstíl hvað varðar það málefni en ég er meðvituð og reyni að gera mitt besta til að skilja eftir eins lítið kolefnis­spor og ég get. Við þurfum öll að taka þátt í breyttum lífs­háttum sem snúa að velferð nátt­úrunnar. Það er betra að gera eitthvað en ekkert! Hins vegar vona ég að stjórn­völd og fleiri fyrirtæki fari að grípa til frekari aðgerða í stað þess að ábyrgðin liggi einungis hjá einstaklingum.

Annað sem þú vilt taka fram?

Ég vona að við sjáum fram á bjartari tíma hvað varðar verðlag og sendi hlýjar kveðjur út í „kosmósinn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Félagið gerði ekki skriflega ráðningarsamninga og lagði ekki fram vaktaskrár. Dómurinn féllst á kröfur starfsmannanna að fullu.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Innlent

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fólk sem finnur fyrir vanlíðan vegna slyssins hvatt til að leita stuðnings.

Hótað með eggvopni í ráni á höfuð­borgar­svæðinu

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana