Auglýsingastofan Brandenburg hefur nú ráðið Matthías Tryggva Haraldsson sem texta- og hugmyndsmiður.
Brandenburg sendi frá sér tilkynningu um ráðninguna í dag. Kemur þar fram að Matthías hafi gengið í Listaháskóla Íslands og hafi starfað sem listamaður á hinum ýmsu sviðum.
Best er Matthías þekktastu sem söngvari Hatara. „Þá er hann landsmönnum að góðu kunnur eftir vasklega framgöngu sína með Hatara sem skók þjóðarsálina allhressilega í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árið 2019. Matthías var valinn leikskáld Borgarleikhússins í fyrra og fer verk hans á fjalir leikhússins á næstu misserum,“ segir í tilkynningu Brandenburgar.