Miðvikudagur 27. mars, 2024
4.8 C
Reykjavik

Heilbrigðiskerfið brást Svanhildi – Fjölskyldan leitar til almennings

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Svanhildur hefur lengi beðið eftir því að komast til Þýskalands í aðra aðgerð en Sjúkratryggingar Íslands hafa synjað umsókn hennar um fjárhagsaðstoð í tvígang. Hún stendur því frammi fyrir því að þurfa að greiða aðgerðina sjálf. Áætlaður aðgerðarkostnaður eru 5,5 milljónir fyrir utan ferðakostnað og uppihald. Nú er svo komið að Svanhildur þarf að komast í aðgerðina sem fyrst til að hún eigi möguleika á betri lífsgæðum. Stefnt er að aðgerðinni í sumar.“

Svo hljóðar færsla sem fjölskylda Svanhildar Óskar Guðmundsdóttur deilir á Facebook en þar óska þau eftir aðstoð almenning svo hægt sé að bæta líf hennar. Svanhildur er fædd árið 1984, uppalin og búsett í Þorlákshöfn, og á tvær ungar dætur, 16 ára og 12 ára. Líkt og fyrr segir þá fær hún enga aðstoð frá Sjúkratryggingum Íslands.

Hún á að baki erfiða og langa veikindasögu en í fyrra greindist Svanhildur með nokkrar gerðir af æðaþjöppunarheilkennum (compression syndromes). Hún greindist með MALS (Median Arcuate Ligament Syndrome), May-thurner syndrome, Nutcracker syndrome, Pelvic congestion ásamt því að vera með EDS (Ehlers-Danlos syndrome) og fljótandi nýru (migrating kidneys).

Fjölskylda Svanhildar segir nauðsynlegt að leita út fyrir landsteinana. „Þar sem lítil kunnátta er hér á landi á þessum sjúkdómum gekkst Svanhildur undir aðgerð í Þýskalandi 2021 sem heppnaðist vel. Þetta var fyrsta skrefið í vegferð hennar að bata. Enn glímir hún þó við vandamál sem valda henni miklu verkjaástandi, erfiðleikum með að nærast sökum verkja og einkenna frá meltingarvegi, miklum einkennum frá taugakerfi, t.d. miklum pirringi, skjálfta, svima, heilaþoku ásamt minnkandi styrk í fótum og höndum og þarf hún stundum að notast við hjólastól.“

Ef söfnunin gengur vel þá mun Svanhildur fara aftur til Þýskalands í aðra aðgerð. „Þar mun Svanhildur gangast undir æðaígræðslu (skipta út celiac æðinni vegna mikilla þrenginga), fjarlægja mikið magn af örvef í kringum celiac æðina og hengja upp bæði nýrun til að auka blóðflæði. Við fjölskylda Svanhildar höfum því ákveðið, með hennar samþykki, að fara af stað með söfnun fyrir hana og höfum stofnað styrktarreikning í hennar nafni. Við þökkum öllum þeim sem sjá sér fært að styrkja Svanhildi og munum að margt smátt gerir eitt stórt! Ef söfnun þessi gengur vel og næst að safna fyrir aðgerðarkostnaði mun það sem umfram safnast gefast til góðgerðarmála.“

Styrktarreikningur Svanhildar

- Auglýsing -

Kennitala: 260984-2689 Reikningsnúmer: 0123-15-057954

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -