Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Heilsufar er nátengt blóðflokki okkar – Blóðflokkur 0 dregur úr hættu á kórónaveirusýkingu

Nú hafa nýjustu rann­sóknir leitt í ljós að blóð­flokkarnir eru afgerandi fyrir það hvort við eigum eftir að veikjast af tilteknum sjúkdómum. Einn tiltekinn blóð­flokkur gagnast betur en allir hinir.

Sumir blóð­flokkar hafa þó löngum vafist fyrir læknum sem allar götur frá árinu 1901 hafa reynt að rýna í hvað blóð­flokkarnir gefa til kynna um okkur.

Flokkur 0 er konungur blóðflokkanna

Þeir sem eru í blóð­flokki 0 geta tölfræði­lega séð átt von á að sleppa við krabba­mein, minnis­glöp og hjarta­sjúkdóma.

Rannsókn leiddi í ljós að fólki í blóð­flokki A, B og AB er 15% hættara við að látast af völdum hjarta- og æðasjúkdóma en þeim sem eru í flokki 0.

Auk þess virðist blóð­flokkur 0 vernda líkamann gegn krabba­meini.

Vísinda­menn telja skýringuna vera fólgna í því að blóð­flokkarnir A, B og AB fái ónæmis­kerfið til að erfiða, með þeim afleiðingum að líkamanum verði hættara við að veikjast af krabba­meini, á meðan 0 flokkurinn sé hagstæðari hvað þetta varðar.

13 prósent minni ef þú ert í blóðflokki 0

Fólk í 0 blóð­flokki er ólíklegra til að smitast af kórónu­verunni saman­borið við blóð­flokka A, B og AB. Það sýnir stórt danskt rannsóknar­verkefni frá Árósa­háskóla og Háskólanum í Suður -Danmörku.

Vísinda­mennirnir hafa rannsakað 473.654 Dani sem höfðu verið prófaðir fyrir veirunni og borið þá saman við samanburðarhóp meira en 2,2 milljóna manna.

Meðal þeirra 7422 sem fengu jákvæða niður­stöðu voru færri sem voru í blóð­flokki 0 og fleiri sem voru í flokkum A, B eða AB.

Nánar tiltekið er hættan á að smitast af kóróna­veirunni 13 prósent minni ef þú ert í blóð­flokki 0 – og það er óháð því hvort þú ert rhesus jákvæður eða neikvæður.

Blóð­flokkur 0 er samt ekki trygging gegn sýkingu og því hvetja vísinda­mennirnir þig til að fylgja varúðar­ráðstöfunum yfirvalda óháð því í hvaða blóð­flokki þú ert í.

Ekki er enn vitað hvers vegna blóð­flokkur 0 er minna móttækilegur fyrir kóróna­veiru­sýkingu og því er þörf á frekari rann­sóknum. Vísinda­mennirnir að baki verk­efninu vona þó að þessi nýja vitneskja geti hjálpað að meðhöndla og koma í veg fyrir kórónu­veiru­sýkingu.

A og AB geta valdið alvarlegum einkennum kórónuveirunnar

Þar sem blóð­flokkur 0 getur veitt vernd gegn kórónu­veirunnar eru vísbendingar um að blóð­flokkur A og blóð­flokkur AB geti aukið hættuna ekki aðeins á sýkingu heldur einnig á alvarlegum COVID-19 sjúkdóms­einkennum. Þetta kemur fram í kanadískri rannsókn sem hefur rannsakað 95 alvarlega veika COVID-19 sjúklinga.

Að sögn vísinda­mannanna þurftu sjúklingar með blóðflokk A eða blóðflokk AB oftar að fara í öndunarvél, sem getur bent til þess að þeir hafi orðið fyrir meiri skemmdum á lungavef vegna sýkingarinnar.

Sjúklingar með A eða blóðflokk AB höfðu einnig hærri tíðni nýrna­bilunar og almennt voru þeir lengur á gjörgæslu­deildum en sjúklingar með blóðflokk 0 eða B.

Ný bandarísk rannsókn hefur rannsakað blóðflokk A og komist að því að SARS-CoV-2 er með prótín, RBD, sem virðist kjósa þennan blóðflokk.

Kóróna­veiran notar prótínið til að bindast frumum og í saman­burði við aðra blóð­flokka binst prótínið oftar við frumurnar í öndunar­vegi  hjá fólki í blóð­flokki A.

Hér að ofan má sjá í kökuriti hvernig blóð­flokkarnir fjórir deilast á heimsvísu. Þess má þó geta að svæðis­bundnar sveiflur koma fyrir og í Suður-Ameríku eru t.d. margir í flokki 0 á meðan flestir Norður­landabúar eru í flokki A

Íslendingar skera sig þó úr meðal Norður­landaþjóð­anna, því hér eru um 56% í blóð­flokki O, 32% í blóð­flokki A, 10% í B og einungis 3% í blóð­flokki AB.

Til saman­burðar þá er A flokkurinn algengastur hjá frændum okkar Norð­mönnum, þar sem 49% tilheyra þeim flokki, 39% eru í O flokki, 8% í B og 4% Norðmanna eru í AB blóð­flokknum.

Blóðflokkur AB getur leitt af sér minnisglöp

Önnur athyglis­verð rannsókn gaf til kynna að fólki í blóð­flokki AB væri alls 82% hættara við vanda­málum í tengslum við minnið en þeim sem tilheyra öðrum blóð­flokkum.

Vísinda­mennirnir skýra þetta á þann hátt að blóð­flokkurinn ákvarði hvernig og hve auðveldlega blóðið storkni og að blóð tiltekinna flokka storkni betur en annarra, með þeim afleiðingum að litlir blóð­tappar myndist og erfiðara reynist að muna.

Rh-jákvætt eða -neikvætt

Kerfið sem aðal­flokkarnir fjórir skiptast eftir, kallast „AB0“ og grundvallast á því að yfirborð sumra blóðkorna er þakið ólíkum mótefna­vökum, ellegar sykrum sem nefnast A eða B, á meðan sum blóðkorn hafa enga mótefna­vaka (0).

Samkvæmt öðru blóð­flokkunar­kerfi, Rhesus, flokkast blóð­flokkarnir í grófum dráttum í þá sem fela í sér mótefna­vakann D (Rh-jákvæðir) og þá sem ekki hafa hann (Rh-neikvæðir). Fyrir bragðið er yfirleitt talað um átta blóð­flokka, þ.e. A, B, AB og 0 sem annaðhvort eru Rh-jákvæðir eða Rh-neikvæðir.

Mikilvægt er fyrir fólk að vita hvort það er Rh-jákvætt eða -neikvætt, því blöndun þessara flokka getur haft í för með sér alvarlegar afleiðingar fyrir þá sem eru Rh-neikvæðir.

Heimildir:

Gorm Plamgren og Anne Lykke. 2021, 04.08. Heilsa okkar ræðst af blóðinu. Lifandi vísindi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra