Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var í nótt kallað út vegna reyks í íbúð í austurborg Reykjavíkur. Þar hjálpaði slökkviliðið ungum hjónum búsettum í íbúðinni við reyklosun. Engan sakaði.
Þar hafði kviknað í einhverju sem lagt hafði verið ofan á eldavélina, en kötturinn á heimilinu er grunaður um að hafa kveikt á eldavélinni.
„Þetta kennir okkur að leggja aldrei neitt ofan á eldavélina aldrei,“ segir í Facebook-færslu slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu.
Keramík- og spanhelluborð geta verið varasöm á heimilum þar sem ferfætlingar búa, þá sérstaklega kettir. Loppur þeirra geta auðveldlega kveikt á slíkum eldavélum, þegar loðdýrin brjóta húsreglurnar og fá sér göngutúr yfir eldhúsbekkinn og helluborðið.
Mikilvægt er að muna að stilla slíkar eldavélar ávallt á læsingu, en það er í flestum tilfellum afar einfalt. Það er sömuleiðis góð barnalæsing. Með því má koma í veg fyrir að vakna við það sama og ungu hjónin í austurbænum í nótt.