- Auglýsing -
Á morgun, miðvikudaginn 31. ágúst mun hinn heimsfrægi, brasilíski töframaður, Bernardo Sedlacek halda fyrirlestur fyrir hérlenda töframenn í Hinu íslenska töframannagildi.
Bernardo hefur haldið röð fyrirlestra nú í sumar, víða um Bandaríkin, og í júlí hélt hann þrjár sýningar á dag í heila viku á hinum rómaða stað, The Magic Castle í Los Angeles í Kaliforníu. Hann hélt fyrirlestur og vinnustofu á alheimsmóti töframanna í Quebec í Kanada í ágústbyrjun, þar sem um 3.500 töframenn voru. Þá hefur hann undanfarnar vikur haldið fyrirlestra og sýningar víða um Evrópu, nú síðast í Austurríki og Sviss, en frá Íslandi fer hann svo til Bretlandseyja, þar sem hann verður næstu vikurnar við fyrirlestrahald í töfrafræðum.
Hið íslenska töframannagildi er áhugafélag um töfrabrögð, stofnað árið 2007 og félagar í því eru einnig félagar í alþjóðlegum samtökum töframanna, sem kallast IBM, eða: International Brotherhood of Magicians. HÍT hvetur áhugafólk um töfrabrögð, sem myndi vilja taka þátt í starfi félagsins, að hafa samband í netfangið: [email protected] fyrir miðvikudagskvöld, en ekki er nauðsynlegt að vera fulllærður í töfrabrögðum, heldur er félagið vettvangur þeirra sem hafa áhuga á slíkum fræðum og vilja ef til vill læra meira.