Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Pólitík

Sakar Trygg­inga­stofnun um að veita rangar upp­lýs­ingar og sýna for­dóma

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Pólitík

Glúmur segir Ólaf Ragnar „mesta vind­hana sem Ísland hefir fætt og klætt“

Helga segir yfirlækni ýta undir fordóma í tengslum við ADHD „Fólkið með stóru tilfinningarnar“

„Frábært bara. Akkúrat það sem adhd gengið þurfti á að halda. Svona til að auka aðeins for­dómana í þjóð­fé­lag­inu,“ skrifar Helga Flosa­dóttir í pistli sem hún birti á Facebook-síðu sinni í vik­unni en Mannlíf fékk leyfi til þess að birta skrifin. Í pistl­inum gagn­rýnir Helga við­tal Vísis, við Halldóru Jóns­dóttur, yfir­læknis bráða­geð­deildar Land­spít­al­ans. Í við­tal­inu segir Halldóra sífellt fleiri leita á geð­deildir vegna geð­rofsein­kenna eða örlyndis eftir að hafa verið ávísað örvandi ADHD- lyfjum. Greindi hún jafn­framt frá því að ákveðið hafi verið að ráð­ast í rann­sókn á tengslum örvandi lyfja við geð­rof og örlyndi.

Helga bendir á í pistli sínum að lengi hafi verið vanga­veltur um rangar grein­ingar í þjóð­fé­lag­inu.
„Ég þekki bara ekki nokkurn kjaft, sem ég hef heyrt að hafi hoppað í geð­rof af adhd lyfj­unum sínum, ver­andi svo sann­ar­lega með adhd. Er nú ekki ein­hver maðkur í mys­unni þarna? Hef nú aðeins heyrt í fólki og það er ýmis­legt sem getur leitt til geð­rofs, sem er nú ekki hægt að segja að sé bara vegna réttrar notk­unar lyfj­ana. Þannig að jú, endi­lega rann­sakið þetta. Svo er það nú þessar enda­lausu pæl­ingar í þjóð­fé­lag­inu að fólk sé ofgreint og allir á lyfjum og what not. Ég er ennþá á því að það sé frekar van­grein­ing hér heldur en hitt. Ég mun ekki hagg­ast frá þeirri skoðun. Hins vegar er það nú svo að það þurfa ekki allir lyf, sem eru með adhd.“

Helga rekur þá hin ýmsu atvik sem ein­kenna fólk með ADHD.

„Hugsið nú aðeins til baka. 

Skrítni ein­bú­inn. 

Krakkinn hang­andi i gard­ín­unum.

Krakkinn sem var alltaf í gipsi.

Konan sem er alltaf bak­andi, þrí­fandi, saum­andi og strauj­andi. 

Kallinn sem er alltaf með hamar, sög eða bor­vél á lofti.

Gaurinn sem er alltaf i slags­málum.

Allur mann­skap­ur­inn sem þrífst á adrena­líni.

Liðið í skorpu­vinn­unni.

Mann­skap­ur­inn sem er alltaf flytj­andi. 

Gaurinn sem er alltaf að gefa vinum sínum eitt­hvað til að missa þá ekki.

Stelpan sem þagði alltaf.

Mann­skap­ur­inn i neyslu(selfmedication).

Spilafíkl­arnir.

Fólkið með stóru til­finn­ing­arnar.

Fólkið með stóra hjartað.

Fólkið með litla hjartað.

Fólkið með stóra skapið.

Fólkið með mikla hressið.

Fólkið með miklu sorg­ina.

Fólkið  sem talar alltaf öskr­andi.

Ung­lings­stelpan sem varð alltaf skotin i öllum strákum sem yrtu á hana. 

Stelpan sem var alltaf i ást­ar­sorg.

Stelpan sem var alltaf með hæl­særi því hún gat bara alls ekki beðið eftir rétta skó­núm­er­inu i búð­inni.

Stelpan sem fór eftir öllum regl­unum og gat ekki labbað yfir á rauðum kalli, um hánótt og ekki kjaftur í sjón­máli, ekki heldur sem full­orðin kona. 

Stelpan sem fór að gráta því hún gleymdi pen­ing fyrir skíða­ferða­lag­inu.

Stelpan sem fór all in i mús­ík­ina sem hún hlust­aði á og vissi allt um lista­menn­ina.

Stelpan sem lærði alla músík text­ana en getur ekki munað staf í nýju músik­inni, sem full­orðin kona. 

Stelpan sem ákvað að horfa ekki á fréttir þegar hún sá hungr­uðu börnin i eþópíu og forð­ast þær eins og heitan eld­inn 30 árum síðar.

Konan sem getur eig­in­lega ekki horft á sann­sögu­legar myndir.

Stelpan sem grætur þegar hún les um hörm­ungar heims­ins og skánar ekki með aldr­inum. 

Unga konan sem er með svo ljós­lif­andi ímynd­un­ar­afl að hún er ekki enn búin að jafna sig eftir lestur fréttar sem Óli tynes var­aði við­kvæma við, rúmum 20 árum síðar. 

Munn­ræpan sem fer svo út fyrir efnið að hún man ekki hvað hún hvað hún sagði.

Hirð­fíflið.

Stelpan sem lenti alltaf i slags­málum því hún var að verja minni­máttar.

Stelpan sem fór svo i verka­lýðs­málin.

Stelpan sem er korter í burnout á full­orð­ins­árum því álagið kemur úr öllum áttum.

Unga konan sem gat ekki horft á sjón­varp öðru­vísi en að prjóna.

Konan sem getur ekki horft á sjón­varp öðru­vísi en að vera að skrolla sím­ann.

Stelpan sem mundi allan fjand­ann í den en man ekki hvað hún gerði í gær.

Stelpan sem var alltaf mætt­ust en gleymir að fara til mömmu sinnar trekk i trekk. 

Konan sem talar hraðar en hún hugsar og er bull­andi mál­hölt.

Stelpan sem fór alltaf snemma að sofa en tekur reglu­lega vök­una, sem full­orðin kona, því haus­inn stoppar ekki.

Unga konan sem var góð kærasta en gefur sér ekki tíma til að bjóða kall­inum í pulló og sleik. 

Stelpan sem var einu sinni skemmti­leg en á full­orð­ins­ár­unum kjaftar alla úr sam­tal­inu.

Stelpan sem þoldi ekki gaur í 20 ár vegna þess að hún beit í sig að hann hefði lúbarið hest­inn sinn, þegar gekk illa í keppni, en kemst að því sem kona, að það var bróðir hans sem lamdi hest­inn.

Konan sem verður að vera i djöf­ul­gangi ann­ars fún­kerar hún ekki, hún nefni­lega veit að hún stendur ekki upp aftur það skiptið. 

Stelpan sem horfði mikið á sjón­varp en sest kannski 2 sinnum i mán­uði i sófann, sem kona, þegar hún veit að hún “má” sofna yfir sjón­varp­inu.

Stelpan sem vakn­aði alltaf á undan klukk­unni en sefur reglu­lega yfir sig sem kona.

Unga konan sem missti af brúð­kaupi góðra vina því hún beit i sig að það væri klukkuríma seinna. 

Stelpan sem pass­aði bróðir sinn mikið en er and­lega fjar­ver­andi mamma i dag.

Stelpan sem lærði fyrst og lék svo, en á full­orð­ins­ár­unum geymir allt fram á síð­ustu stundu og jafn­vel skrópar.

Konan sem getur ekki pakkað niður vegna því hún er sjúk­lega hrædd um að gleyma ein­hverju.

Mamman sem gleymir iðu­lega að græja og gera eitt­hvað í sam­bandi við börnin.

Konan sem kaupir bæði því hún getur bara alls alls alls ekki valið. 

Konan sem hoppar sjö sinnum inn því hún gleymir ein­hverju á leið­inni út í bíl. 

Konan sem fær áráttu fyrir alls­konar og annað kemst ekki að á meðan.

Konan með miklu strax­veik­ina, að hún er bara out of order, þar til hún fær eða gerir það sem greip áhug­ann.

Konan sem vinnur við þrif og á gjör­sam­lega allar græjurnar.

Konan sem ætl­aði bara að flytja inn barna­föt en er flytj­andi inn allan fjand­ann. 

Konan sem gefur sér ekki tíma í að setja inn vörur á heima­síð­una sína en er með trilljón fb síður í stað­inn. 

Stelpan sem týndi aldrei neinu en finnur ekki eitt­hvað, sem kona, vegna þessa að ein­hver færði það um 10 senti­metra.

Konan sem vill vera all­staðar en þó hvergi.

Konan sem þarf rútínu og á bágt með öll frí. 

Excelstelpan sem er farin svo langt út fyrir rammann að hún ratar ekki heim.

Stelpan sem missir tökin sem full­orðin kona. 

Stelpan sem þekkir ekki þessa konu.

Ég var þessi stelpa en er þessi kona. 

Þekkir þú svona fólk? Ert þú svona fólk?’’

Þess má geta að Helga er með opið Snapchat, Helga Flosa, en þar ræðir hún hin ýmsu mál – ADHD meðal ann­ars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Er Sabrina Pasterski næsti Einstein?

Eftir að hafa smíðað flugvél á unglingsárum rannsakar Sabrina Pasterski nú svarthol, þyngdarafl og eðli rúmtímans.
Innlent

Maður játar að hafa brotið rúður í nærri þrjá­tíu bílum á Sel­tjarn­ar­nesi

Innlent

Erfða­rann­sóknir á Íslend­ingum lyk­il­at­riði í þróun nýs megr­un­ar­lyfs

Innlent

Eyjan sem átti að hverfa árið 2020 stendur enn upp úr sjó

Pólitík

„Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

Innlent

Innlent

Umboðs­maður Alþingis krefur Útlend­inga­stofnun svara

Fjölmargar kvartanir vegna tafa á afgreiðslu umsókna hafa borist umboðsmanni, sem vill skýringar á biðtíma.
Innlent

Drífa segir frjálst val í vændi oft vera blekk­ingu

Innlent

Lög­reglan gerði mis­tök en íslenska ríkið sleppur við bætur

Innlent

Nú er hægt að spjalla við lög­regl­una á net­inu

Innlent

Egill segir íslenska fjöl­miðla fasta í einni mestu fréttagúrku síð­ari ára

Innlent

Fíkni­efna­bóndi í Reykja­vík dæmdur í fang­elsi