Laugardagur 20. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Helgi býður sig fram: „Mitt mat er að óbreyttu haldi fylgi Sjálfstæðisflokksins áfram að hnigna“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson – frambjóðandi til embættis ritara Sjálfstæðisflokksins – segir í grein sinni, Að taka í handbremsuna, „að stundum getur staða manns í skák litið vel út á yfirborðinu en samt er taflið eiginlega tapað þar eð það er eingöngu andstæðingurinn sem getur þróað og bætt stöðu sína. Sé ekkert gert til að hrista upp í hlutunum þá versnar staðan hægt og sígandi þar til að taflið tapast.“

Bætir við:

„Framsýnir skákmenn hins vegar bregðast við þessum aðstæðum og reyna að breyta gangi mála, t.d. með óvæntum útspilum eins og að fórna liði í því skyni að gera taflið flóknara fyrir andstæðinginn.“

Helgi segir að „Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið stærsti stjórnmálaflokkur landsins frá því að hann var stofnaður árið 1929. Flokkurinn hefur verið burðarstólpi í þróun íslensks samfélags. Lengst af var hann með hreinan meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur og á landsvísu var kjörfylgi hans oft og einatt nálægt 40%. Þessir tímar virðast liðnir,“ segir skákmeistarinn og heldur áfram:

„Síðast komst flokkurinn yfir 30% á landsvísu í alþingiskosningum árið 2007 og síðast komst hann yfir 40% í borgarstjórnarkosningum árið 2006. Fylgið hefur staðnað eða dvínað en samt heldur flokkurinn stöðu sinni sem stærsti flokkur landsins. Lægsta fylgi hans í borgarstjórnarkosningum var núna sl. vor og í síðustu tvennum alþingiskosningum árin 2017 og 2021 hlaut hann sína verstu útkomu, að frátöldum kosningunum sem haldnar voru skömmu eftir efnahagshrunið haustið 2008, þ.e. vorið 2009.“

Helgi bendir á að „tölfræði er eitt, félagslegur veruleiki er annað. Að mínu mati býr Sjálfstæðisflokkurinn enn yfir þreki til að snúa taflinu við. Klukkan tifar hins vegar og það kemur ekki að sjálfu sér að breyta hinni pólitísku vígstöðu. Það þarf að endurskipuleggja með hvaða hætti Sjálfstæðisflokkurinn nær til kjósenda, ekki síst til þeirra sem yngri eru.“

- Auglýsing -

Að mati Helga er „grundvallaratriðið í þessum efnum er að flokkurinn ástundi fagleg vinnubrögð í sínum eigin málum og hafi líflegt félags- og flokksstarf. Á þeim stutta tíma sem ég unnið á vettvangi Sjálfstæðisflokksins sem stjórnmálamaður hef ég sannfærst um að þar sé um auðuguan garð að gresja af fólki sem vill leggja sitt af mörkum til að flokkurinn dafni og vaxi. Þennan mannauð þarf hins vegar að virkja með markvissari hætti.“

Hann segir frá því að „ófáar hugmyndir hef ég í þeim efnum og það er helsta ástæða þess að ég gef kost á mér til embættis ritara Sjálfstæðisflokksins á landsfundi sem haldinn verður í Laugardalshöll í byrjun nóvember. Framboð mitt byggir einnig á þeirri forsendu að fulltrúi grasrótar flokksins eigi að vera á meðal þeirra sem gegna æðstu embættum flokksins og að það sé kostur að þar sé fulltrúi sveitarstjórnarstigsins en ekki að í öllum þeim embættum sitji alþingismenn og ráðherrar.

Að lokum, mitt mat er að óbreyttu haldi fylgi Sjálfstæðisflokksins áfram að hnigna. Fyrir því eru engin knýjandi rök. Mitt framboð til ritara flokksins snýst öðrum þræði um að benda á þá þörf að flokkurinn grípi í handbremsuna og efni til ærlegra skoðanaskipta í því skyni að efla fylgi sitt. Með réttum viðbrögðum núna er nefnilega hægt að snúa vörn í sókn.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -