Föstudagur 29. mars, 2024
-0.2 C
Reykjavik

Hertari aðgerðir á Vestfjörðum vegna COVID-19

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Gripið hefur verið til harðari aðgerða vegna kórónuveirunnar á Ísafirði, Hnífsdal og Bolungarvík. Samkomubann miðast nú við fimm manns og ákveðið hefur verið að loka leik- og grunnskólum nema fyrir forgangshópa. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í tilkynningu sem lögreglan á Vestfjörðum hefur sent frá sér.

Aðgerðastjórn almannavarna á Vestfjörðum hefur ákveðið að bregðast við Covid-19 smiti í Bolungarvík, Hnífsdal og á Ísafirði með hertum aðgerðum. Er þetta gert í í samráði við sóttvarnalækni og almannavarnardeild ríkislögreglustjóra. Aðgerðirnar hljóða svo:

Leik- og grunnskólum í Bolungarvík og á Ísafirði verði lokað frá og með morgundeginum 2. apríl 2020. Þó skulu börn á forgangslistum fá vistun á leikskólum og 1. og 2. bekkjum grunnskóla.
Samkomubann verði miðað við 5 manns (þetta á þó ekki við um fjölskyldur sem búa á sama heimili).
Fjöldi viðskiptavina í stærri verslunum (>150 fermetrar) sé að hámarki 30 á hverjum tíma.
Hvatt er til þess að fólk haldi sig heima, haldi samskiptafjarlægð, takmarki ferðir og fylgi leiðbeiningum yfirvalda.
Þeim vinnustöðum eða hópum sem telja sig þurfa undanþágu er bent á að sækja um slíkt hjá heilbrigðisráðuneytinu.

Ákvörðunin tekur að svo stöddu ekki til Suðureyrar, Flateyrar, Þingeyrar eða Súðavíkur. Er það á grundvelli stöðu smitrakningar í dag. Áfram eru íbúar á þessum stöðum hvattir til að fylgja almennum reglum og leiðbeiningum.

Fólk sem finnur til einkenna á að halda sig heima og hafa samband við Heilbrigðisstofnun Vestfjarða í síma 450 4500 eða á heilsuvera.is. Tekin eru sýni alla virka daga á Ísafirði kl. 10-11, en fyrst þarf að fá samband við lækni.

Nánar um þessar reglur á Facebook-síðu Lögreglunnar á Vestfjörðum. Á heimasíðunni Covid.is er hægt að afla sér almennra upplýsinga um kórónaveiruna og ýmislegt sem henni viðkemur.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -