Föstudagur 19. apríl, 2024
2.1 C
Reykjavik

Hjartamagnýl dregur úr dauðsföllum af völdum alvarlegrar lungnabólgu

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Gamla lyfið, acetýlsalicýlsýra, sem er betur þekkt sem aspirín, magnýl, eða hjartamagnýl, virðist hafa sterk og tölfræðilega marktæk verndandi áhrif gegn dauðsföllum meðal þeirra sem greinast með alvarlega lungnabólgu af völdum algengustu lungnabólgubakteríunnnar, sem kölluð er Streptococcus pneumoniae á fagmáli.“

Þetta segir Magnús Gottfreðsson, prófessor í smitsjúkdómum við Háskóla Íslands og yfirlæknir á Landspítala, um niðurstöður í nýrri rannsókn sem unnin er af vísindafólki Háskóla Íslands og Landspítala. Í vikunni birtist grein í hinu virta tímariti Journal of Internal Medicine þar sem þessar niðurstöður eru dregnar fram en greinin byggist á rannsókn Kristjáns Godsk Rögnvaldssonar sem doktorsnemi við Læknadeild HÍ og læknir á Landspítala. Magnús Gottfreðsson er leiðbeinandi hans í verkefninu.

„Þessi verndandi áhrif komu strax fram og voru raunar sterkust í bráðafasa sýkingarinnar, en þá er einmitt verulega aukin hætta á ýmiss konar fylgikvillum eins og hjartabilun og kransæðastíflu og dánartíðnin er há. En áhrifin entust í eitt ár og líklega lengur sem er afar merkilegt. Þetta á við um þá sem eru að taka lyfið þegar þeir veikjast eftir að leiðrétt hefur verið fyrir hugsanlegum bjögum,“ segir Magnús.

Marktækt betri lifun

„Lifun þeirra sjúklinga sem voru á hjartamagnýli við komu var borin saman við lifun þeirra sem voru ekki á lyfinu við innlögn. Leiðrétt var fyrir mun milli hópanna með líkindaskori og lifun hópanna borin saman með tölfræðilegri aðferð sem kölluð er cox-aðhvarfsgreining. Þeir sjúklingar sem voru á hjartamagnýli reyndust hafa marktækt betri lifun 90 dögum og einu ári eftir sýkinguna miðað við ef þeir hefðu ekki verið á lyfinu. Athygli vekur að mesti munurinn kom fram á allra fyrstu dögunum eftir sýkinguna,“ segir Kristján.

Hann segir jafnframt að þessi rannsókn gefi vísbendingar um verndandi áhrif hjartamagnýls meðal þeirra sem stríða við alvarlega lungnasýkingu af völdum lungnabólgubaktería.

„Mikilvægt er þó að slá þann varnagla að hér var ekki um slembaða meðferðartilraun að ræða og hugsanlega er til staðar einhver undirliggjandi þáttur sem skýrir þessi áhrif sem var ekki leiðrétt fyrir. Frekari rannsóknir þarf því til að staðfesta eða hrekja niðurstöðurnar.“

- Auglýsing -

Rannsóknarúrtakið náði til heillar þjóðar

Þeir Magnús og Kristján segja það sérstakt við rannsóknina að hérlendis hafi verið hægt skoða mjög stóran hóp með alvarlega sýkingu af völdum einnar og sömu bakteríunnar og fylgja hópnum eftir í langan tíma. Þeir segja að rannsóknarúrtakið hafi náð til heillar þjóðar yfir 45 ára tímabil og lifun hafi verið könnuð allt að einu ári eftir lungnabólguna. Í heildina voru í rannsókninni 815 tilvik sýkingarinnar.

„Með því að fara yfir allar sjúkraskrár sem tiltækar voru á landinu var því komið í veg fyrir að sérstakir undirhópar sjúklinga væru skoðaðir en aðrir skildir eftir, sem er algengt í erlendum rannsóknum, og þá er erfiðara að yfirfæra niðurstöðurnar á stærri hópa,“ segir Magnús og bætir því við að einnig teljist merkilegt að aspirín sé selt án lyfseðils og margir taki það án samráðs við lækni.

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -