Hödd Vilhjálmsdóttir, almannatengill og lögfræðingur, vísar á bug sögusögnum í pistli sem hún birti á Facebook síðu sinni í morgun. Samkvæmt heimildum Mannlífs er maðurinn sem um ræðir Árni Pétur Jónsson, fyrrum forstjóri Skeljungs. Árni lét af störfum í febrúar eftir að hafa fengið tölvupóst frá fyrrum samstarfskonu sinni. Sagði hann í yfirlýsingu að konan hafi greint frá því að í dag upplifi hún samskipti þeirra á þessum tíma með þeim hætti að hann hafi gengið yfir ákveðin mörk og því hafi hann ákveðið að láta af störfum. Konan sem sendi Árna tölvupóstinn hefur ekki tjáð sig opinberlega um málið.
Facebook færslu Hödd má lesa í heild hér að neðan.