Miðvikudagur 27. mars, 2024
2.8 C
Reykjavik

Hödd segir það rétt að reka Eið Smára: „Loksins virðist KSÍ ætla að standa í lappirnar“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Almannatengilinn Hödd Vilhjálmsdóttir segir það einfaldlega hafa rétta ákvörðun hjá Vöndu Sigurgeirsdóttur og félögum hennar hjá KSÍ að reka Eið Smára Gudjohnesn, aðstoðarþjálfara karlalandsliðsins í fótbolta. Á meðan hann sé að glíma við sín persónulegu vandamál sé honum enginn greiði gerður að vera í slíkri ábyrðarstöðu.

Hödd Vilhjálmsdóttir, almannatengill.

Hödd fjallar um brottreksturinn og lýsir skoðuna sinni í færslu á Facebook. Þar fullyrðir hún að hefði hún sjálf við í sömu stöðu og Eiður hefði hún fengið hvílíka útreið í fjölmiðlum og samfélagsmiðlum fyrir það eitt að vera kona. En meðvirknin sé svo mikil í íslensku samfélagi segir hún að útreiðina fær KSÍ í stað Eiðs Smára.

Sjá einnig: Svona var drykkjupartý KSÍ þegar Eiður Smári var rekinn – „Hver er glæpurinn?“

„Þó svo að ég hafi verið markahæsti leikmaður á Pæjumótinu i Vestmannaeyjum á síðustu öld hafa afrek mín í knattspyrnu ekki orðið fleiri. Gefum okkur samt að ég væri heimsfræg knattspyrnustjarna sem hafi leikið með landsliði okkar Íslendinga og stórum liðum úti í heimi. Skórnir væru nú komnir á hilluna og ég tæki að mér ýmis ábyrgðastörf tengt íslenskri knattspyrnu líkt og að vera aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins og væri mikils metinn álitsgjafi og spyrill í sjónvarpi um íþróttina. Sökum þess eins að ég væri mannleg burðaðist ég með bakkus í farteskinu (sem ég sjálf raunverulega geri) og ætti erfitt með að stjórna honum á köflum. Það tæki að berast fólki til eyrna að ég væri oft í annarlegu ástandi víðs vegar um bæinn. Einn daginn mætti ég svo ölvuð í beina íþróttaútsendingu í sjónvarpi og síðar hefði ég girt niður um mig og migið á Ingólfstorgi og verið svo óheppin að það atvik náðist á myndband. Ég þori nánast að hengja mig upp á það að uppsagnarbréfin hefðu verið fljót að berast mér og ég þori ekki að hugsa þá hugsun til enda um hvernig útreiðin í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum hefði verið. Því ég er jú kvenmaður,“ segir Hödd.

Sjá einnig: Eiður Smári hættur með landsliðið: „Síðasta ár hefur verið mjög krefjandi“

Hödd leggur á það áherslu að Eiður Smári hafði áður fengið áminningu í starfi, einmitt vegna áfengisvandamála líkt og Mannlíf hefur greint frá, og hann hafi sjálfur lýst því yfir að hann væri að vinna í sínum málum. „Víðsvegar í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum má í dag svo sjá meðvirkni margra landsmanna. Stjórn KSÍ og aðalþjálfari landsliðsins eru úthrópuð sem svikarar og þeim gefið að sök að hafa fellt Eið með því að áfengi var á boðstólum í ferðinni. Mér hreinlega blöskrar þetta meðvirknisrugl,“ segir Hödd og heldur áfram:

- Auglýsing -

„Held ég í raun að Eiði hafi með uppsögninni verið greiði gerður þó líklega sjái hann það ekki þannig. Ég þekki Eið Smára ekkert fyrir utan að hafa spilað við hann fótbolta þegar ég var sjö ára gömul í Álfatúninu. Þeir einstaklingar sem við þekkjum sameiginlega bera honum allir virkilega vel söguna og það getur enginn sagt annað en að hann er maður sem við landmenn eigum að vera stolt af. Eiður er samt mannlegur og eftir allar þær oft réttmætu árásir sem hafa dunið á KSÍ undanfarið ætla ég að hætta mér í að lýsa yfir þeirri skoðun minni að loksins virðist sambandið ætla að standa í lappirnar, hætta meðvirkninni og taka ábyrgð. Eiði er held ég enginn greiði gerður með að vera haldið í þessu ábyrgðarhlutverki á meðan hann tekst á við sitt.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -