Fimmtudagur 28. mars, 2024
-0.2 C
Reykjavik

Höfða fjölda riftunarmála vegna greiðslna úr WOW

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Þrotabú WOW air hefur ákveðið að höfða fjölda riftunarmála vegna greiðslna sem skiptastjórar búsins telja hafa verið inntar af hendi á vafasömum tíma vegna stöðu fyrirtækisins. Samkvæmt frétt RÚV áttu greiðslurnar sér stað í mars í fyrra en flugfélagið fór í þrot í lok sama mánaðar.

Þorsteinn Einarsson, annar skiptastjóra búsins, staðfesti í samtali við Mannlíf að um væri að ræða um 13 mál en vildi ekki tjá sig um það hvort Skúla Mogensen, fyrrverandi forstjóra WOW, væri stefnt í þeim öllum líkt og RÚV hélt fram. Í frétt RÚV, sem var birt í kjölfar skiptafundar í gær, sagði að stærsta riftunarkrafan varðaði kaupréttargreiðslur til Títans, móðurfélags WOW, en heildarupphæð greiðslanna næmi um 2 milljörðum.

Þorsteinn sagðist ekki getað staðfest töluna.

Morgunblaðið greindi frá því síðustu helgi að hópur skuldabréfaeigenda sem tók þátt í skuldabréfaútboði WOW í  september 2018 hefði sent fyrrverandi forstjóra og stjórn bréf þar sem þess væri krafist að þau bættu það tjón sem skuldabréfaeigendurnir urðu fyrir þegar WOW fór í þrot.

Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins eru stjórnendurnir sem kröfurnar beinast að Skúli Mogensen, Liv Bergþórsdóttir, þáverandi stjórnarformaður, Helga Hlín Hákonardóttir lögmaður og Davíð Másson, flugrekandi og fjárfestir.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -