Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Pólitík

Sakar Trygg­inga­stofnun um að veita rangar upp­lýs­ingar og sýna for­dóma

Pólitík

Glúmur segir Ólaf Ragnar „mesta vind­hana sem Ísland hefir fætt og klætt“

Fólk

Höllin við Sjafn­ar­götu hefur beðið eftir kaup­anda frá vor­inu 2023

Fólk

Laufey stal sen­unni á einni glæsi­leg­ustu tísku­há­tíð árs­ins

Pólitík

Reykja­vík­ur­borg þegir um upp­sagnir 50 starfs­manna

Innlent

Maður játar að hafa brotið rúður í nærri þrjá­tíu bílum á Sel­tjarn­ar­nesi

Innlent

Egill segir íslenska fjöl­miðla fasta í einni mestu fréttagúrku síð­ari ára

Pólitík

„Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

Innlent

Fíkni­efna­bóndi í Reykja­vík dæmdur í fang­elsi

„Höfum við tekið þá ákvörðun að afþakka heimsóknir skólabarna á vegum skólans á aðventunni“

„Höfum við tekið þá ákvörðun að afþakka heimsóknir skólabarna á vegum skólans á aðventunni“
Séra Davíð Þór Jónsson er í fram­boði

Laug­ar­nes­kirkja hefur sent frá sér frétta­til­kynn­ingu þar sem kirkjan hefur ákveðið að afþakka heim­sóknir skóla­barna á vegum skól­ans á aðvent­unni sem er í vændum.

Til­kynn­ing frá Laug­ar­nes­kirkju:

„Um áraraðir hafa heim­sóknir skóla­barna í Laug­ar­nes­kirkju verið fastur liður í aðventu­haldi og jóla­und­ir­bún­ingi bæði kirkj­unnar og skól­ans.

Á seinni árum hefur tekið að gæta and­stöðu við þessar heim­sóknir meðal sumra for­eldra og hafa börn verið tekin út úr hópnum á meðan skóla­systkin þeirra hafa komið í heim­sókn til okkar. Okkur í Laug­ar­nes­kirkju hefur sárnað eilítið þessi tor­tryggni for­eldra í garð þess­ara heim­sókna, enda ein­ungis um að ræða vett­vangs­ferð í sam­fé­lags­fræðslu.

Kirkjan er hluti af sam­fé­lagi okkar – hvað sem hverjum kann að finn­ast um það.

Ferðir þessar hafa verið að frum­kvæði skól­ans og að öllu leyti á hans for­sendum. Þeir kenn­arar og skóla­stjórn­endur sem fylgt hafa börn­unum geta vottað um að þar á sér ekk­ert stað sem kalla má trú­boð eða trú­ar­iðkun, aðeins fræðsla.

Dagskrá heim­sókn­anna hefur verið búin til í skól­anum, ekki kirkj­unni. Þrátt fyrir þetta hefur and­staðan við þessar heim­sóknir farið vax­andi ár frá ári og valdið ágrein­ingi á milli þeirra sem vilja halda í þessa hefð og hinna sem vilja að hún legg­ist af.

Við í Laug­ar­nes­kirkju viljum ekki vera í þeirri stöðu að valda ágrein­ingi í nær­sam­fé­lagi okkar. Við viljum ekki heldur vera þess vald­andi að börn séu úti­lokuð frá þátt­töku í hluta skóla­starfs­ins. Við viljum að um okkar góða starf ríki sátt og friður.

Því höfum við tekið þá ákvörðun að afþakka heim­sóknir skóla­barna á vegum skól­ans á aðvent­unni sem er í vændum.

Okkur er óljúft að taka þessa ákvörðun, en til að kirkjan geti sinnt starfi sínu í næði viljum við forð­ast að um hluta þess standi styr sem þessi – jafn­vel þótt hann sé að okkar mati ástæðu­laus og óþarfur.

Þess í stað verður boðið upp á dag­skrá fyrir skóla­börn í Laug­ar­nes­kirkju alla fyrstu viku aðvent­unnar á milli kl. 3 og 5. Börn á grunn­skóla­aldri eru vel­komin í kirkj­una á þeim tíma og við munum gera okkur glaðan dag, lesa jóla­guð­spjallið, syngja jóla­lög og eiga góða stund saman við bæn og til­beiðslu.

Hvetjum við for­eldra til að nýta sér það og kíkja í heim­sókn til okkar.

Í Guðs friði, f.h. Laug­ar­nes­kirkju Sr. Davíð Þór Jónsson, prestur í Laug­ar­dals­presta­kalli.

„Leyfið börn­unum að koma til mín, varnið þeim eigi því að slíkra er Guðs ríki.“ (Lúk 18.16)

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Fólk

Spólglaður öku­maður fékk mak­leg mála­gjöld

Lögregla sinnti umferðarlagabrotum, þjófnaði úr verslun og ónæði í verslunarmiðstöð í gærkvöldi og nótt.
Innlent

Allir Bónus vanillu­dropar inn­kall­aðir

Heimur

Er Sabrina Pasterski næsti Einstein?

Innlent

Erfða­rann­sóknir á Íslend­ingum lyk­il­at­riði í þróun nýs megr­un­ar­lyfs

Innlent

Eyjan sem átti að hverfa árið 2020 stendur enn upp úr sjó

Innlent

Innlent

Umboðs­maður Alþingis krefur Útlend­inga­stofnun svara

Fjölmargar kvartanir vegna tafa á afgreiðslu umsókna hafa borist umboðsmanni, sem vill skýringar á biðtíma.
Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Innlent

Lög­reglan gerði mis­tök en íslenska ríkið sleppur við bætur

Innlent

Nú er hægt að spjalla við lög­regl­una á net­inu

Innlent

Drífa segir frjálst val í vændi oft vera blekk­ingu

Innlent

Þrír hand­teknir vegna ráns í Graf­ar­vogi