Fimmtudagur 28. mars, 2024
1.8 C
Reykjavik

Hrækti á lögreglumenn við handtöku

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nægu að snúast laugardagskvöld og aðfararnótt sunnudags.

 

Laust fyrir klukkan sjö í gærkvöldi kom lögregla ölvuðum manni í austurborginni til aðstoðar. Maðurinn brást illa við aðstoð lögreglu og hrækti hann í andlit lögregluþjóns og sparkaði í annan. Hann var því handtekinn og vistaður í fangageymslu vegna ástands hans og hegðunar. Maðurinn lét mjög ófriðlega í vörslu lögreglu og tókst honum að hrækja í andlit tveggja lögregluþjóna til viðbótar.

 

Um klukkan fimm í morgun kom lögreglan konu til aðstoðar á Seltjarnarnesi. Konan hafði læst sig inni á baðherbergi og sat þar föst. Lögregla skreið inn um glugga að baðherbergi hennar, og tókst að lyfta henni upp og út um gluggann. Konan var frelsinu fegin, sér í lagi þar sem hún komst tímanlega í flug.

 

- Auglýsing -

Tilkynning barst um um heimilisofbeldi í Hafnarfirði. Lögregla fór rakleiðis á vettvang og verklag varðandi heimilisofbeldi var þegar í stað virkjað. Málið er nú í rannsókn.

 

Brotist var inn í grunnskóla í austurborginni um áttaleytið. Lögregla fór á vettvang og er málið í rannsókn.

- Auglýsing -

 

Lögreglan sinnti einnig fjölda útkalla um allt höfuðborgarsvæðið vegna samkvæmishávaða. Fjórir ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna, og tveir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -