- Auglýsing -
Hrafn Jökulsson, skákfrömuður, rithöfundur, mannvinur og náttúruverndarsinni berst nú fyrir lífi sínu en í sumar greindist hann með bannvænt krabbamein. Í morgun birti hann færslu á Facebook þar sem hann talar um nýjustu vendingar í stríðinu við Surtlu, sem hann nafnið sem hann gaf krabbameininu.
„OPERATION MIKAEL — SURTLA BRÝST ÚR UMSÁTRI — ALLSHERJARSTRÍÐ
Óvinurinn hefur rofið umsátrið á fjölmörgum vígstöðvum og tekið svæsna lungnabólgu og sýkingar í sitt lið. Barist er um hverja frumu hér á krabbameinsdeildinni.
Markmið gærdagsins: Ná miðnætti. Það tókst og nóttin fór í dýrðlegan dans.
Markmið dagsins: Lifa til miðnættis.
Og njóta lífsins!
GLEÐJIST GÓÐU VINIR“
Ef fólk vill styrkja Hrafn eru hér upplýsingar: Reikningur: 1161-05-400511 Kennitala: 011165-3709
Mannlíf sendir Hrafni baráttukveðjur og vonar að hann nái öllum sínum markmiðum.