Föstudagur 19. apríl, 2024
0.1 C
Reykjavik

Hrollvekjandi dýraníð í Dölum: Alls 120 kindur og átta nautkálfar sultu til dauða vegna vanrækslu

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Dómsmál vegna hryllilegs dýraníðs á bænum Kringlu í Dalabyggð í Dalasýslu er nú rekið fyrir Héraðsdómi Vesturlands. Bóndanum, Arnari Frey Þorbjarnarsyni, er gefið að sök að hafa hætt að sinna dýrunum á bænum með þeim skelfilegu afleiðingum að 120 kindur og átta nautkálfar drápust.

Samkvæmt heimildamönnum Mannlífs var aðkoman að bænum í einu orði sagt hrollvekjandi þegar nágrannar ákváðu að líta eftir skepnunum. Nautkálfarnir höfðu verið dauðir svo lengi að þeir voru orðnir þurrir viðkomu og kindurnar lágu dauðar á víð og dreif. Einhverjar skepnur á bænum náðu að brjóta sér leið í hlöðuna og komast þannig fóður .

Eins og gefur að skilja var nágrönnum afar brugðið og var þá þegar tilkynnt til MAST, Matvælastofnunar, um hið hrottalega dýraníð á Dölum. Þar hefur málið farið sína leið og er nú fyrir héraðsdómi eins og áður sagði. Athygli vekur hins vegar að stofnunin hefur nú veitt sambýliskonu Arnars leyfi til að halda fram dýrahaldi á bænum en þau sinntu saman búskap áður en illa fór.

„Þú þarft í sjálfu sér ekkert leyfi til að vera með dýrahald“

Þórður Pálsson, dýraeftirlitsmaður hjá MAST, segist í samtali við Mannlíf lítið geta tjáð sig efnislega um málið en að almennt þurfi ekki leyfi stofnunarinnar til að vera í sauðfjárbúskap. Aðspurður staðfestir hann að sambýliskonan fái að halda áfram búskap og dýrahaldi á bænum. „Þú þarft í sjálfu sér ekkert leyfi til að vera með dýrahald. Þetta fólk er ekki gift og við lítum svo á að hún sé sér einstaklingur. Við lítum ekki þannig á málið að hún hafi verið í búskapnum þegar þetta var. Ég held að hún hafi ekki verið að svæðinu og það eru skepnur þarna núna. Okkar krafa er sú að hann komi ekki nálægt þessu,“ segir Þórður.

Snemma árs 2018 komu forsetahjónin Guðni Th. og Eliza Reid í opinbera heimsókn í Dalabyggð. Þá heimsóttu þau meðal annars Arnar og sambýliskonuna í Kringlu.

„Ungir bændur í Kringlu í Miðdölum, tóku á móti okkur með börnum sínum. Þar og víðar gátum við rætt um vanda sauðfjárbænda og leiðir til lausna. Okkur fannst Dalamenn horfa björtum augum fram á veg en vera um leið raunsæir,“ sagði Guðni forseti þá í samtali við Skessuhorn. Nokkru eftir heimsóknina fór allt á verri veg.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -