Þriðjudagur 23. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Hvunndagshetjur: „Langaði að gefa gjöf sem fólkið á deildinni gæti notið líka“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Árið 2008 hittust þau í fyrst sinn. Stefán fékk þá óvænt símtal frá konu, sem reyndist vera Sesselja. Hún tjáði honum að hún ætti níræða móður sem byggi á lokaðri deild á Hrafnistu í Reykjavík. Hún vildi endilega fá hann í smá verkefni. „Hún segir: Við systkinin, okkur langar að gefa henni eitthvað í afmælisgjöf sem fólkið á deildinni getur notið með henni. Þau fá mig og Davíð Ólafsson söngvara til að koma og syngja fyrir sig nokkur létt og skemmtileg lög,“ rifjar Stefán upp.

Stefán Helgi Stefánsson söngvari starfar sem kennari og Margrét Sesselja Magnúsdóttir er fyrrverandi kennari. Leiðir þeirra lágu saman fyrir tilviljun en í dag starfa þau saman í óhefðbundna dúóinu Elligleðinni. Elligleðin er starfsemi sem hefur árum saman farið í skipulagðar heimsóknir til fólks með heilabilun, þar sem íbúar eru gladdir með söng. Viktoría Hermannsdóttir hittir Elligleðina í þættinum Hvunndagshetjur sem er á dagskrá á RÚV í kvöld.

„Við erum búin að vera að heimsækja mömmu í mörg ár og höfum aldrei séð fólkið svona áður,“ segir Margrét Sesselja Magnúsdóttir um örlagaríkan fund hennar og Stefáns Helga Stefánssonar söngvara. Síðan hafa þau um árabil skipað saman Elligleðina, sem skemmtir fólki með heilabilun.

Erum í smá sjokki

Þeir Davíð slógu til, mættu á Hrafnistu og voru að eigin sögn bæði léttir og skemmtilegir. Þeir sungu nokkur lög, þökkuðu fyrir sig og fóru. Það stóð ekkert endilega til að endurtaka leikinn, en þarna var Sesselja að fylgjast með og hún ákvað að slá á þráðinn til Stefáns. „Við systkinin sem vorum þarna erum bara í smá sjokki,“ segir Sesselja í símann. „Við erum búin að vera að heimsækja mömmu í mörg ár og höfum aldrei séð fólkið svona áður.“

Það voru ekki bara systkinin sem voru hrærð því brúnin lyftist hjá nánast öllum íbúum og margir sungu með.

Hér er hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni.

- Auglýsing -

 

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -