Miðvikudagur 24. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Íkveikja og innbrot í nótt: „Kom að manni sem var kominn hálfur inn um svalahurð“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Lögregla sinnti þónokkrum málum sem tengdust ölvun og fólki í annarlegu ástandi. Tilkynnt var um nokkra minniháttar pústra í miðbænum. Þá var í nokkur skipti tilkynnt um hávaða í heimahúsum og frá skemmtistöðum,“ segir í Dagbók lögreglu

Eins og algengt virðist vera um helgar voru þónokkrir ökumenn stöðvaðir, grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Um hálf fjögur í nótt var ökumaður handtekinn, grunaður um akstur undir áhrifum áfengis. Að sögn lögreglu var hann mjög ósamvinnuþýður.

Lögreglunni bárust tilkynningar um tvö innbrot og eina tilraun til innbrots í Árbænum á milli miðnættis og klukkan þrjú í nótt.

„Tilraun til innbrots í hverfi 110. Húsráðandi vaknaði við skarkala og kom að manni sem var kominn hálfur inn um svalahurð á íbúð sinni. Maðurinn komst undan.“ Hann var þó handtekinn þegar þriðja tilkynningin barst lögreglu, grunaður um innbrotin þrjú.

Lögreglumenn urðu varir við eld í Elliðárdalnum en þá stóð vinnuskúr alelda. Tveir menn í annarlegu ástandi voru handteknir, grunaðir um íkveikju.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -