Inga Lind Karlsdóttir, fjölmiðlamaður og eigandi Skot, og Sigurður Viðarsson athafnamaður hafa verið að stinga saman nefjum undanfarið en Mbl.is greinir frá þessu.
Inga Lind seldi fyrir stuttu einbýlishús sitt sem hún átti með Árna Haukssyni, fyrrverandi eiginmanni sínum, á 850 milljónir króna og var sagt í fjölmiðlum að um væri að ræða dýrustu sölu á einbýlishúsi á Íslandi.
Sigurður Viðarsson var um tíma aðstoðarforstjóri Kviku og þar áður var hann forstjóri tryggingafélagsins TM en Inga hefur lengi verið sviðljósinu en hún hóf störf í fjölmiðlabransanum á 10. áratug síðustu aldar. Samkvæmt Mbl.is hafa þau þekkst síðan úr grunnskóla og verið hluti af sama vinahóp síðan.