Laugardagur 20. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Ingþór aflýsir Verslunarmannahelginni: Þúsundir fá ekki laun fyrr en á þriðjudaginn

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Kraumandi reiði er meðal ríkisstarfsmanna í dag vegna ákvörðunar Fjársýslu ríksins að greiða ekki laun fyrr en eftir Verslunarmannahelgina. Margir þurfa því að hætta við áform um að gera sér dagamun um helgina.

Ingþór Karl Eiríksson er fjársýslustjóri, efstur í skipuriti Fjársýslu ríksins, og ber því ábyrgð á framkomu sem margir kalla lúalega. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra skipaði Ingþór í embætti.

Fréttablaðið greinir frá ólgunni meðal ríkisstarfsmanna. Flestir virðast bera harm sinn í hljóði, enda tjá flestir ríkisstarfsmenn sig varlega á samfélagsmiðlum. Þó eru undantekningar frá því. Hvað sem því líður þá snertir þessi ákvörðun þúsundir Íslendinga.

Tilkynning sem birtist á vef Fjársýslunnar bætir svo gráu ofan á svart í huga margra. Óhætt er að segja að tilkynningin sé ekki líkleg til að lægja öldur.  Hún hljóðar svo:

„Að gefnu tilefni minnum við á að laun skulu greidd fyrsta virka dag hvers mánaðar skv. 10.gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna.

Þar sem 1. ágúst ber upp á frídag verslunarmanna er útborgunardagur launa þriðjudaginn 2. ágúst n.k.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -