- Auglýsing -
Svava Kristín Grétarsdóttir flytur íþróttafréttir á Stöð 2. Hún er gefin fyrir hinn fræga mat Cocoa Puffs, eða kókópöffs á okkar ástkæra ylhýra – sem reyndar hefur lengi verið ein uppáhaldsfæða íslensku þjóðarinnar, en er nú ekki lengur fánleg í verslunum hér á landi.
Eða hvað?
„Ég elska að það sé verið að selja Cocoa Puffs pakka á 5.000 krónur í Extraloppunni, reyndar bak við afgreiðsluborðið með hinum lúxusvörunum,” sagði Svava Kristín og bætti við:
„Ég hata hins vegar að ég sé svo nálægt því að kaupa þennan helvítis pakka.”