Fimmtudagur 25. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

Jóhann Rúnar rekinn úr landsliðinu vegna umfjöllunar Mannlífs um hræðileg ofbeldisverk hans

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Mannlíf er eini fjölmiðillinn sem fjallað hefur um mál hestamannsins Jóhanns Rúnar Skúlasonar.

Tvær greinar um hryllilegt ofbeldi Jóhanns Rúnar hafa verið birtar á vef Mannlíf.

Og vegna umfjöllunar Mannlífs um mál hans og hræðilega ofbeldissögu hefur nú Stjórn Landssambands hestamannafélaga sent frá sér opinbera yfirlýsingu; en enginn af stóru fjölmiðlunum hér á landi fjölluðu neitt um málið og var þögn RÚV og Stöðvar tvö um málið afar sérkennileg; einnig var þögn ýmissa fjölmiðla um málið undarleg.

Yfirlýsingin áðurnefnda kemur til vegna umfjöllunar Mannlífs um hræðileg ofbeldisverk knapans Jóhanns Rúnars Skúlasonar; heimilisofbeldi og að hafa nauðgað 13 ára gömlu barni.

Hér má lesa tilkynninguna í heild sinni:

„Stjórn Landssambands hestamannafélaga (LH) og landsliðsnefnd hafa tekið ákvörðun um að víkja einum landsliðsmanni úr landsliðshópi Íslands í hestaíþróttum. Ákvörðunin er tekin í ljósi nýtilkominna upplýsinga um dóm sem landsliðsmaðurinn hlaut fyrir kynferðisbrot, en stjórn sambandsins og landsliðsnefnd hafði ekki verið kunnugt um dóminn.

- Auglýsing -

Stjórn LH telur óverjandi að þeir sem hafi gerst sekir um og eða hlotið refsidóm fyrir alvarlegt kynferðisbrot séu í landsliðshópnum og komi fram sem fulltrúar LH fyrir Íslands hönd, hvort sem er hér á landi eða á erlendri grundu. Er slíkt til þess fallið að skaða ímynd LH, landsins og hestaíþróttarinnar í heild, einnig er það andstætt þeim gildum sem LH stendur fyrir, en sambandið tekur skýra afstöðu gegn öllu ofbeldi.

LH er sérsamband innan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ), en samkvæmt lögum ÍSÍ  er óheimilt að velja einstaklinga sem hlotið hafa refsidóma vegna kynferðisbrota samkvæmt XXII. kafla almennra hegningarlaga til starfa innan íþróttahreyfingarinnar, gildir þetta bæði um þá einstaklinga sem starfa sem sjálfboðaliðar og launþegar.

Stjórn LH hefur m.a. litið til þessarar reglu við ákvörðun sína um að vísa landsliðsmanninum úr landsliðshópnum. Auk þess hefur verið litið til sambærilegar reglu sem samþykkt var á FEIF þingi 2019 og er að finna í viðauka 9 í lögum LH.

- Auglýsing -

Á vettvangi LH og ÍSÍ fer nú fram vinna við endurskoðun reglna og umgjarðar er varðar ofbeldis- og kynferðisbrot og hvaða skilyrði iðkendur þurfi að uppfylla sem keppa fyrir hönd sambandsins.

Fyrir hönd stjórnar og landsliðsnefndar Landssambands hestamannafélaga,

Guðni Halldórsson formaður LH

Kristinn Skúlason formaður landsliðsnefndar LH“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -