Fimmtudagur 28. mars, 2024
-2.2 C
Reykjavik

Jóhanna segir íslenskar konur búa við vinnuþrælkun – eiga að vera þakklátar fyrir tækifærin og þegja

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Er ekki brjálað að gera?“ er spurning sem ég fæ reglulega frá eldri fjölskyldumeðlimi. Hingað til hefur spurningunni verið svarað játandi, enda gleður það viðkomandi, og er ekki lygi. Það er kannski kominn tími til að hugsa svarið upp á nýtt,“ skrifar Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms – Miðstöðvar um máltækni, í pistli á Mannlíf.

Í pistlinum veltir Jóhanna Vigdís upp þeirri spurningu hvort jafnréttisparadísin Ísland hafi sett helmingi landsmanna óskrifuð og ómanneskjuleg jafnréttisskilyrði. „Þögla fyrirvara sem segja að konur fái leyfi til að vinna utan heimilisins,“ skrifar hún, „svo lengi sem þær klúðri ekki hinum vöktunum. Og séu mjóar, smart, hressar, skemmtilegar og sætar.“

„Hún sagði mér að þetta fyrirkomulag hefði opnað augu sín fyrir vinnuþrælkun kvenna á Íslandi. Núna hefði hún nefnilega, í fyrsta skipti síðan fyrir barneignir, tíma fyrir sjálfa sig.“

Hún segist um daginn hafa rekist á gamla vinukonu, bútsetta erlendis en með eiginmann og börn á Íslandi. Það hafi opnað augu vinkonunnar fyrir ástandinu á Íslandi.  „Hún sagði mér að þetta fyrirkomulag hefði opnað augu sín fyrir vinnuþrælkun kvenna á Íslandi. Núna hefði hún nefnilega, í fyrsta skipti síðan fyrir barneignir, tíma fyrir sjálfa sig. Hún gæti farið í vinnuna, unnið eins og brjálæðingur þegar þess þyrfti, komið heim, gert ekki neitt, farið í ræktina, farið í bíó, farið í spa, keypt sér eitthvað í kvöldmatinn, sem hana langaði í, og þar fram eftir götunum. Þriðja og stundum fjórða vaktin væru ekki lengur á hennar herðum.

Fleiri vinkonur hennar, sem eru allar framakonur, hafi tekið undir þetta, en veigri sér við að viðra þá skoðun opinberlega af ótta við að litið verði á þá myndi fólki finnast þær vera svo vanþakklátar. „Tilfinningin væri alltaf sú að þær ættu að vera þakklátar fyrir að fá að vinna utan heimilis, fyrir að fá að taka þátt í opinberri umræðu og jafnvel hljóta framgang á sínum sviðum. Ef þær myndu kvarta undan vinnuálagi þá kæmi það niður á tækifærunum. Enda væru þær þakklátar fyrir að hafa fengið tækifæri sem mæður og ömmur þeirra hefðu bara látið sig dreyma um.“

Hún segir að í hugtakinu ofurkona felist ekki aðeins viðurkenning á vinnuþrælkun kvenna heldur sé þrælkunin beinlínis lofuð.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -