Fimmtudagur 25. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Jón Ásgeir og Skel á fullu: „Þetta var sofandi félag – Gott að allir hafi eitthvað upp úr leiknum“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Fjárfestirinn Jón Ásgeir Jóhannesson segir að Skel fjárfestingarfélag hafi framkvæmt stóran hlut af áætluninni sem Strengur, meirihlutaeigandi félagsins, lagði upp með fjárfestingu í félaginu.

Hann var spurður um markmið Skeljar til næstu tíu ára í hlaðvarpsþættinum Chess after Dark:

„Markmiðið er að búa til öflugt fjárfestingarfélag, markmiðið er að halda því skráðu, markmiðið er að fá erlenda fjárfesta að félaginu. Ég held að skráning sé mikilvægt atriði í því,“ sagði Jón Ásgeir, sem var kjörin í stjórn Skeljar (þá Skeljungur) árið 2019, eftir að 365, félag Ingibjargar Pálmadóttur, sem er eiginkona hans, hafði keypt meira tíu prósent hlut í félaginu.

Jón Ásgeir fer fyrir fjárfestingarfélaginu Streng; og gerði yfirtökutilboð í Skeljung í árslok 2020, og boðaði þá miklar breytingar; fáir hluthafar tóku tilboðinu; en þó eignaðist Strengur meirihluta í Skeljungi í ársbyrjun 2021.

Hvers vegna Skel?

„Ég þekkti náttúrulega félagið, við áttum það á sínum tíma inn í Högum. Þarna var félag sem var með sterkan efnahagsreikning að við töldum, og dulið eigið fé í eignum sem þurfti að kreista fram með að láta efnahagsreikninginn svitna. Ná fram því sem hægt var að ná fram. Um þetta snerist planið.“

- Auglýsing -

Kemur fram að innlendri starfsemi Skeljar var skipt upp í þrjú dótturfélög í fyrra; Orkuna IS, Skeljung IS og Gallon.

Í síðustu ársskýrslu fyrirtækisins Skeljar, hefur Jón Ásgeir sagt að þegar hann kom inn í félagið fyrir þremur árum hafi andinn þar verið líkur því að mæta á fund í ríkisstofnun í gamla daga:

„Kannski vantaði skýrari stefnu, vantaði svona eigendadrifkraft inn í félagið. Þú varst þess hratt mjög áskynja þegar þú komst að félaginu – þetta var sofandi félag. Því gekk ágætlega en það var kominn tímapunktur að hrista upp í því.“

- Auglýsing -

Í apríl var Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason ráðinn forstjóri Skeljar og Magnús Ingi Einarsson fjármálastjóri, og Skel gerði kaupréttarsamninga við þá upp á allt að fimm prósenta hlut í félaginu:

„Ég hef sagt að það sé bara þannig í rekstri fyrirtækja og í öllu öðru, t.d. fótboltaliðum – menn eru misgóðir. Það er alveg ómögulegt að setja alla undir sama launaþak, sérstaklega í forstjórahlutverkinu, sem er eins og að velja bestu íþróttamennina. Þeir kosta mismikið eftir getu,“ sagði Jón Ásgeir sem er klár á því að kaupréttir, sem tengi saman hagsmuni forstjóra og hluthafa, hafi sannað gildi sitt á stærri mörkuðum.

„Ég er líka talsmaður þess að menn reyni að koma slíkum kerfum á fyrir fleiri heldur en bara toppaðilana í fyrirtækjum. Það er gott að allir hafi eitthvað upp úr leiknum.“

Frá þeim tíma er Strengur náði yfirráðum yfir Skel hafa lífeyrissjóðir minnkað hlut sinn í fyrirtækinu, og hafa ýmsir einkafjárfestar komið inn á móti. Aðspurður hvort lífeyrissjóðir séu smeykir við breytingar á rekstri skráðra félaga, segir Jón Ásgeir að sumir sjóðir hafi í það minnsta ekki ánægju af því að einkaframtak sé mikið:

„Það hefur oft verið þannig, finnst manni, að ákveðnir sjóðir eru ekkert hrifnir af því að einkaframtakið komi inn í skráð félög. Þrátt fyrir að þeir tali um það á tyllidögum að það sé eðlilegt að það komi einstaklingsframtakið og drífi áfram félögin – að lífeyrissjóðirnir séu í hlutverki meðfjárfesta – þá er það ekki alltaf þannig.“

En hvað varðar síðan góða samsetningu í hluthafhópi, segir Jón Ásgeir að það sé mikilvægt að hluthafar hafi sameiginlega sýn á rekstur félagsins; gangi í takt.

„Það er alltaf slæmt ef menn eru ekki sammála um framtíðarsýnina. Það er enn þá verra þegar menn segja ekki sína skoðun, þá er það enn erfiðara.“

Hann segir einnig að einkaframtakið hafi verið áberandi í skráðum félögum á Íslandi fyrr á öldinni; en eftir hrun hafi þetta orðið að lífeyrissjóðakerfi með tilheyrandi íhaldi – að lífeyrissjóðirnir einblíni kannski á aðra þætti í rekstri félaganna.

„Á síðustu árum komið inn einkafjárfestar – sem betur fer fyrir þessi fyrirtæki – og aðeins hrist upp í þessu.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -