Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Jón Gnarr kominn með góðar hugmyndir fyrir Kosningavaktina: „Er bannað að gera mistök?“

„Kominn með fullt af góðum hugmyndum fyrir Kosninga­vaktina, þar sem Georg Bjarnfreðarson „leið­réttir“ kjörseðla, reynir að kjafta sig útúr því, þegar upp kemst, en nær að klína því á Ólaf, sem að lokum biður þjóðina afsökunar.“

Svo hljóðar tíst frá Jóni Gnarr á Twitter og hefur það að vonum fengið góðar undir­tektir. Miðað við athuga­semdir við tístið eru ansi margir sem gjarnan myndu vilja sjá aðra Vakta­seríu.

„Mín heitasta ósk er önnur sería. Bara plís. Það er það sem þjóðin þarf eftir eldgos, covid og kosningarugl,“ segir Ásdís Inga til dæmis.

Helga Vala Helga­dóttir, þingkona, er hrifin af hugmyndinni:

„Jáhh nú bara verðum við að fá Georg og þing­vaktina takk!“

Ásgeir Berg vill meina að hægt sé að nota ummæli beint frá formanni yfir­kjör­stjórnar í Norðvestur­kjördæmi, fyrir Georg Bjarnfreðarson:

„„Er bannað að gera mistök?“ eða hvernig sem formaður yfir­kjör­stjórnar orðaði þetta gæti hafa komið beint úr munni Georgs.“

Aðal­heiður Ámunda­dóttir tekur undir:

„Maðurinn, sem er bæði formaður yfir­kjör­stjórnar og héraðs­dómari við Héraðsdóm Reykjanes, spurði blaðamann: Er ólöglegt að gera mistök?“

Jón Gnarr gefur svo fólkinu smjör­þefinn af því sem það vill í dag, með myndbandi á Twitter. Þar sitja þeir Pétur Jóhann Sigfússon, meðleikari Jóns úr Vakta­seríunum, andspænis hvor öðrum og bregða sér í hlutverk þeirra Georgs Bjarnfreðarsonar og Ólafs Ragnars:

„Er bannað að gera mistök?,“ segir Jón í hlutverki Georgs.

„Öhh… nei.. afhverju?,“ svarar Pétur sem Ólafur Ragnar.

„Er BANNAÐ að gera mistök?!,“ spyr Jón með tilþrifum.

„Nei…,“ svarar Pétur aftur.

Að því loknu skelli­hlæja þeir félagar.

Jón Gnarr útskrifaðist nýverið með MFA gráðu í sviðs­listum frá Lista­háskóla Íslands, en eflaust þykir mörgum spennandi að fylgjast með því hvað hann tekur sér fyrir hendur næst. Aðdáendur Vakta­seríanna virðast í það minnsta halda niðri í sér andanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.
Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Innlent

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Lögregla stöðvaði þrjá ökumenn vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna í gærkvöldi og nótt.

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts